Snædís Anna Þórhallsdóttir

Snædís Anna Þórhallsdóttir

 Heimilisfang í France:
Snaedis Anna Thorhallsdottir
Hotel Campanile, chambre #308
2317, chemin de St Claude
06600 Antibes
France


E-mail:
snaedisanna@gmail.com

Símanúmer:
0033642772287

Skype:
snaedis87

MSN:
snedisa@msn.com

og svo kemur bara carminugreinin mín :)

Carmínugrein Snædísar Önnu, ( skrifað í janúar 2007)  

Hún Snæapæja er sko pæja með meiru, hún svífur um á háu hælunum sínum, sem by the way eru í tugatali, eins og fín dama en skipar fyrir eins og versti harðstjóri og þá er bara best að hlýða möglunarlaust, spyrjið bara bræður hennar. Hún er gífurlega skipulögð og er harðbannað að breyta því sem hún hefur ákveðið, það er að segja ef maður vill hafa alla limi í lagi, því að sjálfsögðu hefur hún alltaf rétt fyrir sér. Hennar annað heimili er “sveitin”, þ.e.a.s. hið sjálfstæða ríki Mývatnssveit, þar sem háu hælarnir fá að fjúka og í staðinn koma ullarsokkarnir hennar ömmu og ullarpeysan til að toppa allt, það er bara me me með ullinni og öllu sko!Ef ekki væri fyrir hana Snædísi væri Húsasmiðjan farin á hausinn og búið væri að leggja handboltalandsliðið niður, þar sem hún hefur haldið því gangandi með öskrum og látum úr sófanum. Þessi annars blíðlynda snót umbreytist þegar liðið hennar tapar, munnsöfnuðurinn verður jafnan svo ljótur að ekki er hægt að fjalla um hann hér.Dönnuð og dömuleg eru orð sem ekki koma fljótt upp í hugann þegar manni verður hugsað til hennar Snædísar, algeng sjón er hún á háum hælum og ropandi eins og versti karlmaður, alveg einstaklega kvenlegt get ég sagt ykkur.Eins og margir MA-ingar þjáist hún af bráðdrepandi stærðfræðióþoli, nokkrar stærðfræðibækur liggja nú í valnum eftir meðferðina hjá henni Snædísi. En eins og hetja barðist hún í gegnum áfangana og stefnir nú á stærðfræðilausa framtíð. Dýrin munu skipa stóran sess í framtíð Snædísar, og draumurinn er að verða dýralæknir.  Í vinahópnum er Snædís sú skynsama og skipulagða, nema á djamminu, þar slettir hún sko ærlega úr klaufunum! Hennar hlutverk er einnig að vera bílstjóri hópsins, og Skærgræna Þruman hennar hefur flutt okkur vinkonurnar yfir mörg fjöllin. Hún er meistari í að skjóta föstum skotum á fólk og tekst henni oft mjög snilldarlega að fá fólk til að roðna og sökkva í gegnum gólfið. En allt er þetta þó voða meinlaust, enda hefur hún einstaklega stórt og hlýtt hjarta, þótt fyrri skrif gefi annað í skyn. Snædís er mjög traust og góð vinkona, og er hægt að treysta því að það sem henni er sagt í trúnaði fari ekki lengra. Hún er límið sem heldur okkur saman, enda með eindæmum skemmtileg, og mun myndast stórt skarð þegar hún stingur af til Frakklands eins og stefnan er strax og hún losnar úr menntaskóla. En hún hefur sko húmor í lagi og með sinni einstöku fyndni hefur hún skapað mörg ógleymanleg augnablik og við vinkonurnar efumst ekki um að þau verði fleiri í komandi framtíð.     Heyrist oft:  

“Já þetta er alveg eins og í Friends, muniði...

 “Nei ég er að vinna” 

“Ég VERÐ að eignast þessa skó”

 “Já, ég skal fara á bíl” 

 

Höfundur: Eva Dís Guðmundsdóttir, yfirrugludallur

 

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Snædís Anna Þórhallsdóttir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband