Færsluflokkur: Bloggar

Komið að lokum!

Já það er komið að þessu...engin meiri bið eða niðurtalning.
Ég er búin að vera 6 mánuði og 1 viku hér í Frakklandi og það er komið að því að fara heim.
Þetta er búinn að vera ótrúlegur tími. Ég er búin að kynnast nýju og skemmtilegu fólki, nýjum siðum og venjum og jafnvel nýjum hliðum á mér sjálfri.
Þetta er og verður, án nokkurs efa, eitthvað sem ég kem til með að búa að alla ævi!

Þetta hefur verið erfitt á tímum og stundum langaði mig ekkert meira en að pakka öllum skónum mínum ofan í tösku og fara heim!
Aðra daga, lék lífið við mig og ég velti fyrir mér hvað í ósköpunum maður væri að hugsa að búa í myrkra - og kuldabæli eins og Íslandi.

Núna í kvöld, horfi ég í kringum mig í herberginu mínu, herbergi 308 sem hefur verið heimili mitt síðustu mánuði. Ég er búin að taka myndirnar mínar niður af veggjunum og hirða upp heimilislegu fatahrúgurnar. Allt dótið, föt, SKÓR og annað er komið ofan í ferðatösku sem er um það bil að springa og ég hef áhyggjur af að mér verði ekki hleypt með þetta flykki inn í neina flugvél.

Í kvöld kvaddi ég vinnufélaga mína, fólk sem ég hef hitt á nánast hverjum degi í hálft ár en eftir daginn í dag, hitti ég kannski aldrei aftur!
Ég afhenti gjöfina sem ég nefndi í síðasta bloggi og hún sló að sjálfsögðu í gegn, þó að það þyrfti mikinn sannfæringarkraft til að fá þau til að trúa að það væri í alvöru heitt vatn í bláa lóninu.

Núna ætti ég að fara að sofa, þar sem ég þarf að vakna klukkan 4 í fyrramálið og hefja ferðina heim. Ég veit samt að ég á ekki eftir að geta sofnað, það eru nefnilega mætt kunnugleg fiðrildi í magann.... fiðrildi sem ég fann síðast fyrir 9. september 2007 þegar ég hélt alein í 6 mánaða ævintýri til Frakklands.

Well....úti er ævintýri ;)

ójá, sem fyrrverandi MA-ingur þá get ég nú ekki sett inn blogg án þess að minnast á Gettu betur keppnina í kvöld, ég er ótrúlega stolt af MA, þau stóðu sig eins og hetjur og tókst að gera þetta alveg ótrúlega spennandi! En, já svona er lífið og annað liðið verður að vinna, í kvöld var það MR og til hamingju með það MR-ingar.

-

Smá framhald.....þetta blogg átti að koma inn í gærkvöldi en nettengingin mín ákvað að renna út akkúrtat í þann mund sem ég kláraði bloggið.
Núna sit ég á kaffihúsi á flugvellinum í París og eftir ca 4 tíma verð ég
komin upp í flugvél á leiðinni til Íslands.
Mér var semsagt hleypt um borð þrátt fyrir ógnvænlega stærð töskunnar minnar en jú.... ég er með yfirvigt Blush Get svo svarið það að taskan er svo þung að það er ekki einu sinni hægt að draga hana á eftir sér, hélt að handleggurinn myndi slitna af mér !! 

Allavega, þá er ég komin í bloggpásu núna, kannski bara í stuttan tíma, kannski að eilífu, sé til. Hver veit, ef ég sólbrenn alvarlega og þarf að halda mig innandyra úti á Dóminíska ( sem eru btw allar líkur á) þá kannski gef ég mér tíma til að skella inn eins og einu bloggi !

Annars þakka ég bara skemmtileg komment á síðuna síðustu 6 mánuði og sætt af ykkur að nenna að fylgjast með mér ;)

bisous (kossar)
Snædís Anna - sem er á leiðinni heim !



Kem heim í mánuðinum.....

Vá það er ljúft að geta sagt þetta...kem heim í þessum mánuði. Fer meira að segja burt héðan frá Frakklandi í næstu viku !!!
Ég er þó búin að fá tilboð um að vera hér lengur, 1 -2 helst 3 mánuði en ég þurfti samt ekki að hugsa mig lengi um... Heim verður haldið þann 15. mars! .
Núna eru þeir bara ægilega mógðaðir við mig og segjast allir með tölu hlakka mikið til að ég fari og þeir losni við þessa freku og afskiptasömu íslensku konu Wink 
Ég held að þeir fari allir að grenja þegar ég fer heim, hahahah!
Er búin að ákveða að skilja eftir smá gjöf handa starfsfólkinu þegar ég fer. Lét Evu Dís mína kaupa fyrir mig litla ljósmyndabók um Ísland með texta á frönsku. Með bókinni ætla ég svo að láta fylgja lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna síðan 2007 en þar er Ísland í 1. sæti...en Frakkland í því 10.... vá þeir eiga eftir aðvera svo glaðir múhahaha Tounge

Annars er svosem ekki mikið að frétta, er bara að njóta þess tíma sem eftir er hérna. Sólin er klárlega að taka völdin aftur og eftir að sitja í klukkutíma úti við sundlaugina í gær náði ég mér bara í ágætis roða....ekki brúnku takið eftir..... Roða!!!
Í vikunni er svo stefnan að reyna að senda heim kassa með bókum, dvd myndum og svona þungu dóti sem er langt frá að verði pláss fyrir í ferðatöskunni.
Á dagskránni er líka að fara í sprautu en mér til einstakrar ánægju tilkynntu foreldrar mínir mér það að ég þyrfti að fara sprautu fyrir lifrabólgu A áður en við förum til Dóminíska.
Og kerfið hér er svoooo gáfulegt að maður þarf sko að byrja á því að fara til læknis og hann skrifar upp á lyfseðil fyrir þessu lyfi, og rukkar að sjálfsögðu fyrir. Eftir það þarf að fara í apótekið og sækja lyfið, og borga. Því næst er að fara aftur til læknisins, með lyfið, og biðja hann að sprauta því í þig....og svo, ja þið giskuðuð á það, borga!!!!
En þetta ætla ég samt að leggja á mig og kortið mitt af því að ég er með eindæmum hlýðin stúlka og geri þetta því mamma sagði mér að gera það !! Halo 

já svo eru að hlaðast inn myndir frá því á föstudaginn en þá var ég geggjað hipp og og kúl og fór á de festival de citron í bæ hérna stutt frá. Það er semsagt hátíð það sem allur bærinn er skreyttur með appelsínum og sítrónum og búin til listaverk;) Um kvöldið var svo svaka skrúðganga þar sem vagnarnir voru auðvitað skreyttir með sítrónum og alls konar flott og skemmtilegt.
Allavega, um 50 myndir af sítrónulistaverkum ef einhver hefur áhuga Cool(
www.picasaweb.google.com/snaedisanna)

Hef held ég bara ekkert meira að segja ykkur, þau fara nú að verða fá eftir skiptin sem að ég kem til með að skrifa inn á þessa síðu þar sem ég á pottþétt ekki eftir að nenna að blogga eftir að heim kemur!

En það kemur allavega pottþétt eitt í viðbót áður en ég kveð Frakkland svo bíðið spennt heheh W00t

 bisous
Snædís Anna

ps. gleymdi að útskýra hvað var málið með mörgæsa og ísbjarna spurninguna í siðasta bloggi en það var semsagt vegna þess að snillingurinn sem heldur því fram að Brasilía og Víetnam séu hlið við hlið var svo viss um að það væru mörgæsir á norðurpólnum líka, nú er ég hins vegar komin með svo marga sem eru sammála mér að ég kaffæri hann í rökum næst þegar ég hitti hann ;)


Gleðilegan konudag.....

...kæru dömur ;)

Í dag er víst síðasti sunnudagurinn í febrúar sem þýðir að næsta sunnudag er kominn mars en það þýðir að það eru einungins tvær vikur í brottför mína frá Frakklandi.
Það skall nefnilega á mér núna í vikunni hvað er fáranlega stutt eftir, ég held að ég sé ekki alveg að átta mig á því. Er búin að hlakka svo lengi til að ég næ ekki alveg upp í það að þetta sé bara að fara að gerast. Bara svona svipað og rétt áður en ég fór út....
Ég hef allavega vega ákveðið að taka þann pól í hæðina að reyna að draga aðeins úr tilhlökkuninni, svona svo hún gangi nú ekki frá mér, og njóta þessara síðustu vikna hérna.

Ég geri mér vel grein fyrir að ég hef kvartað yfir ýmsum hlutum og ekki alltaf verið ánægð með lífið hérna. En það er bara óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að fara út í svona ævintýri aleinn... það hlaut alltaf að vera að það yrði eitthvað sem yrði erfitt og ég væri nú bara eitthvað skrýtin ef ég hefði aldrei fengið heimþrá.
En þegar öllu er á botninn hvolft þá hefur þetta verið goður tími og ótrúleg lífsreynsla. Ég er mjög ánægð með að ég gafst ekki upp þegar vinnan var sem erfiðust í byrjun, heldur fékk pep-up frá fólkinu mínu heima og hélt áfram. Ég veit að ég á sko aldrei eftir að sjá eftir að hafa farið hingað og upplifað þetta allt og ég á örugglega eftir að minnast þessa tíma míns hér með bros á vör í framtíðinni. Smile
Já svona er þetta, er voða mikið búin að vera í svona pælingum undanfarna daga.

Humm látum okkur sjá, annað sem ég hef verið að gera... síðan í síðasta bloggi er ég búin að fara einn dag yfir til Ítalíu í lítinn bæ sem heitir San Remo (sjá myndir á www.picasaweb.google.com/snaedisanna ). Það var gaman að geta bara farið upp í lest og einum og hálfum tíma seinna var ég komin í annað land, lúxus sem við íslendingar erum nú ekki vanir. Samt fannst mér allt í einu kjánalegt að geta ekki talað við fólkið þar sem ég skildi ekki neitt og enskan mín lét sig hverfa þegar ég var að reyna að panta mér mat. En eftir mikið handapat og bendingar fékk ég að borða. Fyndið samt hvað ítalirnir eru öðruvísi en frakkarnir, ég sat á bekk þarna og naut útsýnisins og gamall maður settist bara allt í einu við hliðina á mér og spjallaði heillengi við mig....á ítölsku að sjálfsögðu. Ég skildi nú ekki mikið en þó tókst okkur aðeins að spjalla um daginn og veginn. Fannst þetta bara fyndið þar sem þetta hefur aldrei gerst hér í Frakklandi á 5 mánuðum og svo fer ég einn dag til Ítalíu og þá vilja allir spjalla ;)
Svo var þetta pottþétt einhver perrakall  !!! æi nei fallegri tilhugsun að hann hafi bara verið svona indæll Halo

 Daginn eftir Ítalíu tók ég aftur lest og fór þann daginn til Marseille, en það er önnur stærsta borgin í Frakklandi og víst líka sú önnur hættulegasta í Evrópu Bandit
En víkingurinn ég lét það nú ekki hræða mig, tók lestina galvösk og var mætt á svæðið 2 tímum seinna. Það var þá sem ég áttaði mig á því, þar sem ég stóð á stærstu lestarstöð sem ég hef á ævinni séð, í borg þar sem búa 1,5 milljónir manna, að ég hafði ekki hugmynd um hvert ég átti að fara eða hvað ég ætlaði að gera. Eftir að vera búin að prófa að labba út um 4 mismunandi útganga lestarstöðvarinnar ákvað ég að taka bara neðanjarðarlestina á einhvern töff stað. Ég fann nafn á kortinu sem ég kannaðist við úr túristabókinni minni og þangað var haldið. Þakkaði guði fyrir að Irene kenndi mér hvernig metro-ið í París virkar þegar ég var þar því þetta kerfi var eins....sorry nú verð ég að útskýra afhverju ég skrifaði nafnið hennar ef hún les þetta

*Irene, je te dis merci de me montrer comment le metro a paris marche parce que le metro a Marseille a était pareil :* Je t'aime Kissing

Anyway, ég fann tourist-information eftir stutta metro ferð og allt reddaðist. Nema ég reyndar villtist feitt í miðbænum og var orðin illa pirruð þegar ég var farin að ganga dimmar götur og ljótir, spúkí karlar, kallandi á eftir mér. Ótrúlegt en satt var það svo svona lítil túristalest sem að bætti skapið eftir að ég var hætt að vera villt. Eitthvað sem ég var sko búin að sverja að ég ætlaði aldrei að gera því þetta væri svo hrikalega lame, þið vitið svona lítil opin lest, full af túristum í sandölum og sokkum og fer svo hægt að hún tefur umferð. En þetta reyndist svo vera auðveld og ódýr lausn til að skoða borgina. Getið séð myndir frá Marseille á myndasíðunni ;)

Á fimmtudaginn síðasta fór ég svo kveðjuferð í CAP3000, en það er risamallið hérna.  Útsölurnar eru nefnilega búnar og núna eru ný föt i öllum búðunum. Það er þá sem ég lendi í vandræðum nefnilega, ekki þegar eru útsölur. Var komin þangað um 2 leytið og fékk mér að borða og já...klukkan 5 ákvað ég að ég yrði bara að fara þarna út til að stoppa mig af. Á leiðinni út bað ég öryggisvörð að setja mig á bannlista, svo að mér yrði ekki framar hleypt þarna inn...úff svakaleg ferð sko....fyrir veskið þ.e. ég skemmti mér konunglega Joyful

Um kvöldið fór ég svo á fyrsta djammið mitt á nýju ári. Hún Amie frá Noregi, sem var með mér í skólanum, er nefnilega komin aftur hingað til Antibes og ég fór því á vistina og fór á djammið með krökkunum þar. Var svo bara grand á því og tók taxa heim á hótel eftir á....25 evrur takk fyrir fyrir 10 mínútna bílferð !!! Ég gat spjallað helling við leigubílstjórann á leiðinni heim og verð nú bara að nefna sko að þó ég segi sjálf frá þá er ég bara að verða nokkuð ánægð með frönskuna mína!

En já á fös, var fundur með Contact Europe og var það síðasta skiptið fyrir mig, þar sem ég verð farin þegar næsti fundur er!!! Fórum á skauta í Nice, brjálað fjör og svo kaffihús á eftir. Borðaði svo með þremur þjóðverjum um kvöldið og óvart sagði við þau að mér fyndist þýska ljótt tungumál Blush
Góð Snædís !!!

Vinnan gengur fínt bara, er orðin brjálað góður þjónn ;) heheh allavega betri en þessir letikúkar sem eru að reyna að læra að vera þjónar, ég sver metnaðurinn fer með þá einn daginn - NOT!!
Það er sko eiginlega hægt að segja að það sé hin besta skemmtun að horfa á þennan 16 ára sópa gólfið, hann heldur jú báðum höndum um sópinn en svo sveiflar hann honum bara svona fram og til baka og í hringi. þannig fýkur ruslið undir stólana og hann sér það ekki lengur og voilá....job done !!! Svo er hann alveg hissa þegar manneskjan sem skúrar gólfið á eftir kvartar yfir að það sé illa sópað hjá honum (oftast ég Wink)
Einnig er hin besta skemmtun að plata þessar elskur til að tala ensku. Einn þeirra var svaka kúl við kvöldmatarborðið í kvöld þegar hann bað mig að rétta sér grænmetið á ensku! það var borðið fram einhvern vegin svona ~ vegjétabeles ~ ég ætlaði að sjálfsögðu aldrei að hætta að hlægja, það láku tár og allt og að launum fékk ég vegjétabeles upp í eyrun Shocking

Annað gott enskudæmi: Um daginn spurði einn þeirra hvort að mér fyndist ekki Alicia Keis góð söngkona...Ekki Keys...nei Keis...!!!!
Það versta við hann reyndar er að hann tekur engum sönsum þegar ég góðlátlega reyni að leiðrétta. Sami drengur hefur nefnilega áður haldið fram að Víetnam sé við hliðina á Brasilíu og að Kína sé í norður-Ameríku. Ég í góðmennsku minni reyni að leiðrétta hann en Nei, ég er bara vitlaus og þegar ég gafst upp á að vera góðlátleg og sýndi honum heimskort til að rökstyðja mig þá er það bara vitlaust og það hefur gleymst að merkja víetnam inn á það !!!!
Já þeir eru frábærir þessir Frakkar. Whistling

Jæja ætla að fara að hætta að gera grín að þessum ljúflingum og fara að smella mér inn í draumaheiminn. Byrjaði nefnilega að vinna um hádegi alla síðustu viku og var orðin bara vön því svo að vakna klukkan 8 alla daga þessa viku er alveg að fara með mig ! Svo mér veitir ekki af að fara að sofa.

Hafið það gott elskurnar og við sjáumst einhver eftir 3 vikur, hinir á djamminu 29. mars W00t Ekki langt í það  hehe ó já og ein spurnig til ykkar svona í lokin....

Eru mörgæsir á norðurpólnum ???

 Bonne nuit mes chéries

Snædís
 


Febrúar ....

Jæja já... úff ég veit að ég er löt að blogga en það er lika ástæðan fyrir þvi að ég hef aldrei nennt að vera með blogg áður.... þið getið bara gengið út frá því held ég að ef að kemur ekki nýtt blogg þá er ég ekki að gera neitt merkilegt.

Síðustu vikur hafa verið frekar rólegar og tilbreytingarlausar. 
Frídagarnir hafa farið í rölt í Cannes eða Nice, bíóferðir og jú svo fór ég upp í fjöllin hérna í kring á fimmtudaginn síðasta. Ég var búin að sjá svo marga bæklinga um þennan fjallabæ, að þetta væri einhver algjör fjallaparadís svo ég ákvað að drífa mig. Leitaði lengi en fann að lokum viljastyrkinn til að vakna klukkan 7 um morguninn, tók 1 strætó og 2 lestar og 4 tímum eftir að ég vaknaði var ég komin á leiðarenda. Það er skemmst frá því að segja að þessi bær var minni en Grenivík og það var ekkert að gera þarna...eftir hálftíma var ég búin að taka nóg af myndum af fjöllunum og svona því jú, útsýnið og náttúran var mjög flott. En já ekki lengi gert að skoða þennan bæ...Endaði  með að taka lestina til baka til Nice og fór þar í bíó á Ástrík og Steinrík...skemmti mér konunglega og hló mikið,  mæli sko eindregið með þessari mynd.

Svo gerðust þau undur og stórmerki á föstudaginn að ég safnaði upp hugrekki og dreif mig í klippingu. Hef verið frekar hikandi við það sökum þess að ég var hrædd um að ég gæti ekki gert mig skiljanlega og þá yrði hárið litað fjólublátt og svo er ég líka bara búin að sjá svo mikið af konum hér í Antibes með HRÆÐILEGAR hárgreiðslur...en svo ákvað ég á föstudaginn að þetta gengi ekki lengur..og það kom í ljós að þessi hræðsla mín var algjörlega ónauðsynleg.
Strípurnar  tókust bara vel og klippingin..ja ég hef ekki verið með svona stutt hár í mörg ár en er samt bara ánægð með þetta....fegin að losna við lubbann...

 

Tende 7.feb 009

LUBBI !!!

Tende 7.feb 010

Búið klippa lubbann..."smá" breyting !!

 

 Annars er ekki mikið annað í fréttum...í dag eru akkúrat 5 vikur í að ég hitti familíuna í Reykjavík og fari með þeim í sólina á Dóminíska lýðveldinu í 10 daga...svo er það bara Ísland og ljúfa lífið...
Held að ég sé farin að hlakka of mikið til....en það er nú bara þannig að lífið hér er orðið svo mikill vani og ég held að ég sé að verða komin með ógeð á að vera ein með sjálfri mér ehehe
Svo það verður æði að koma heim og byrja í nýrri vinnu og geta böggað vinkonurnar ef að mig vantar eitthvað að gera ;) Búin að vara þær við að ég verði örugglega mjög uppáþrengjandi þegar ég kem heim. ;)

Veðurfréttir: í dag er heiðskírt og 18° hiti!! Samt finnst mér ekkert rosalega heitt og ef maður er í skugga þá er bara kalt!!
Liður ykkur ekki betur með skaflana ykkar þarna heima þegar ég segi að mér sé kalt í 18 gráðum Tounge

Jæja hef ekkert meira að segja...er búin að láta vita að ég er á lífi en eins og ég segi þá geri ég ráð fyrir að næstu 5 vikurnar verði frekar rólegar og komi aðallega til með að snúast um að hlakka til að koma HEIM !!!

Oki þetta er orðið gott...stutt blogg svona til tilbreytingar :P

Adios

 ~ Snædís Anna ~

 

Ps.  ég og þolinmæðin mín gáfumst upp á myndaalbúminu á þessari síðu svo ég bjó til nýtt og það er kominn tengill inn á þá síðu hér til hliðar... endilega kíkkið, afgangurinn af parísarmyndunum er að hlaðast inn og hver veit nema ég smelli inn nokkrum myndum frá jólunum ;)


Smá innskot....

Í dag labbaði ég í Carrefour til að kaupa mér hádegismat því að ég fékk hrísgrjón í matinn á hótelinu. Ég labbaði út á peysunni og á leiðinni fann ég lyktina af nýslegnu grasi og það var fuglasöngur allt í kringum mig. Svo settist ég niður í sólinni og borðaði ljúffenga samloku.
Það er komið vor hjá mér ........
Er ekki annars bara stuð þarna heima í frostinu og snjónum
Tounge


Bonjour....

Hmm gleymdi ég að minnast á það í síðasta bloggi að það var bæði
fyrsta og síðasta bloggið á nýja árinu Blush
 
hehe nei nei ætli maður verði nú ekki að láta vita af sér stöku sinnum.

Allavega já já ég er alveg á lífi og hef það ágætt. Er ekkert lögst í þunglyndi eða neitt svoleiðis eftir Svíaleikinn á fimmtudaginn. Ég var reyndar hættulega nálægt því að springa úr reiði FYRIR leikinn. !!!!
Reiði mín hafði reyndar ekkert með Svía að gera en allt með ruv.is og þá staðreynd að ég skuli vera í Frakklandi að gera.
Já það er nefnilega þannig að eins og ég sagði ykkur frá í siðasta bloggi þá var ég sko alveg búin að setja mig í stellingar að hofa á landsleikina á ruv.is. Horfði á (svekkjandi) Danaleikinn þar og líka Tékkaleikina. Svo var ég svo heppin að ég var í fríi á fimmtudaginn svo að ég var mætt fyrir framan tölvuna með nammi í kringum mig og tilbúin að þenja lungun klukkan 8 á fimmtudagskvöldið (að frönskum tíma)
Dembi mér svo inná mitt ástkæra ruv.is og NEI!!!!! Þar blasti við mér þessi texti

 Landsleikir frá EM í handbolta eru aðeins aðgengilegir innanlands vegna réttindamála á útsendingum.

AAAARRRGGG!!!! W00t
 Já þar með var draumurinn úti....jesús hvað ég var reið.
Aumingja Eva Dís slysaðist inná msn og fékk alveg reiðigusuna yfir sig...sorry krúsin mín...hún hélt held ég að það væri eitthvað alvarlegt að og var bara fegin þegar hún áttaði sig á því að það var bara handbolti.
Reyndar bætti það skap mitt ekki þar sem að þetta var að sjálfsögðu gravalvarlegt vandamál
að mínu mati. Wink
Svo verð ég að vinna þegar leikurinn er í kvöld svo að ég get ekki einu sinni fylgst með "beinu SKRIFUÐU lýsingunni"  á mbl.is
Jæja á ég að hætta að tala um handbolta eða....Whistling

Það er ekki neitt að frétta heheh
Er búin að ákveða hvernig ég breyti flugunum mínum og á þá bara eftir að bóka. Það verður reyndar ekki gert fyrr en samtökunum þóknast að borga mér styrkinn minn
Allavega lendi á klakanum 15. mars um 4 leytið seinnipartinn og þar ætlar hún Halldóra frænka að bíða eftir mér. Hún lendir sjálf í Keflavík 2 klukkutímum fyrr en ég og svo ætlum við að redda okkur gistingu saman. Ég ákvað að það væri miklu betra að fljúga á laugardeginum og geta sofið almennilega og svona áður en maður heldur út í sólina með familíunni.
Á mánudeginu 17. mars er það svo bara sólin og blíða...djíísús hvað ég hlakka til. Ætla sko bara að liggja á ströndinni og gera sem minnst...kannski kíkja í mallið sem er víst við hliðinaTounge

Jamm eins og ég segi er ekki mikið í fréttum, það er búin að vera rigning hér síðan ég veit ekki hvenær....hélt að ég myndi drukkna á mánudaginn síðasta, en nú er aftur kominn sól og blíða og stefnir í að það haldist eitthvað þannig.

En já á mánudaginn átti ég frí og uhum...já uuu fór "pínu" á útsölur Halo
Það voru hins vegar engir strætóar þar sem að núna er strætóbílstjórarnir alltaf í verkfalli á mánudögum...Frakkar eru án efa verkfallsglöðustu menn í heiminum. Ég hins vegar neitaði að láta verkfallið eyðileggja fyrir mér að fara á útsölur svo ég bara labbaði niður í bæ í rigningunni og tók svo lest í mallið. Um kvöldið þegar ég kom til baka þá var svo mikil rigning að ég bjóst bara við því þá og þegar að regnhlífin mín myndi gefa sig. En þetta hafðist allt á endanum og ég komst heim með alla pokana Cool

Já svo verð ég nú að segja frá þessu svona í framhaldi af siðasta bloggi þegar ég var að reyna að finna einhvern frægan íslending sem þessir lúðar hérna á hótelinu þekktu. Allavega þá kemur einn þeirra til mín í gær þegar hann mætti í vinnuna og segir þvílíkt glottandi...
"ég er búinn að finna íslending sem ég þekki"
Ég varð náttúrlega bara ofsaglöð og alveg nú hvern??
"Fíísjer" sagð'ann þá enn meira glottandi
Hmm ég var nú ekki alveg að átta mig á þessu íslenska nafni fyrr og horfði bara á manninn spurnaraugum....
"Hann er frægur skákmeistari"
Piff já Bobby Fisher, það er nú ekki hægt að kalla hann Íslending sagði ég frekar móðguð.
Það hafði þá komið í frönsku fréttirnar að Bobby greyið Fisher væri dáinn og það hefur greinilega eitthvað verið minnst á að Ísland líka...
já við Íslendingar erum greinilega alveg að fara að taka yfir heiminn..það er alveg ljóstJoyful

Jæja ætla að fara að slá botninn í þetta. Það kemur svo í ljós annað kvöld hvort að það var gáfulegt hjá mér að auglýsa að Frakkland og Ísland væru að keppa á morgun. Vona að ég verðir ekki niðurlægð og þurfi að kaupa Mcdonald's ofan í þjónana eins og veðmálið segirErrm

Nei auðvitað verður það ekki þannig Ísland rústar þessu.... maður verður nú að vera bjartsýnn eins og íslendingum sæmir ha.....koma sér í æfingu fyrir Eurovisionbjartsýnina LoL

Áfram Ísland...kv. Snædís Anna



 


Gleðilegt ár!

Góðan og blessaðan.

Þá er að koma með fyrsta bloggið á nýja árinu.
Að sjálfsögðu byrja ég þá á að segja Gleðilegt nýtt ár þið öll og takk kærlega fyrir ótalmargar skemmtilegar stundir á gamla árinu Kissing

Svo þakka ég líka kærlega fyrir allar þær fallegu gjafir og jólakort sem ég fékk frá ykkur heima. Mér hefur án efa aldrei fundist eins gaman að fá jólakort eins og þessi jól :)

Svona til að segja svo aðeins frá jólunum okkar Steina þetta árið þá voru þau vægast sagt frábrugðin því sem að maður er vanur! Steini kom á föstudeginum 21. des og um þá helgi fórum við svo í mallið í Nice og Steingrímur verslaði frá sér allt vit....reyndar var það nauðsynlegt þar sem að hann gat einungis komið með takmakað magn af fötum með sér því að taskan hans var full af jólagjöfum frá hinum og þessum hehe

Síðan var ég nú bara að vinna flesta dagana og Steini stundaði letilífið grimmt á meðan...
Á aðfangadag var ég reyndar í frí og þá fórum við og versluðum okkur í jólamatinn.
Við borðuðum svo uppá herbergi og ég held að ég verði bara að setja inn mynd af "matarborðinu" okkar við tækifæri. Á matseðlinum var kampavín, jarðaber og súkkulaði, ostar og kex og vínber...og já mandarínur !!! Við átum okkur ágætlega södd af þessu, spjölluðum svo aðeins við mömmu og pabba á skype og horfðum svo á mynd!!!
Þetta var semsagt mjög frábrugðið venjulegu aðfangadagskvöldi en samt sem áður bara mjög kósý og skemmtilegt.
Restin af tímanum var svo svipuð...ég að vinna og þegar ég var ekki að vinna fórum við í bæinn, eitt skipti til Mónako og svo nokkrum sinnum út að borða.
Annars voru það bara afslöppun og rólegheit sem voru við völd.
Steini fór svo heim í gær og ég get ekki sagt að það hafi verið beint skemmtileg ferð á flugvöllinn...en ég hugga mig við það að það eru bara 10 vikur í að ég fari þangað aftur og það verður sko skemmtileg ferð hehe

Annars er ekki mikið nýtt að frétta. Ég er bara farin að setja mig í stellingar fyrir EM í handbolta og hitaði upp í gær með þvi að horfa á Ísland - Danmörk...svekkjandi tap þar enda er alltaf verst að tapa fyrir helvítis Dönunum Crying
Ég komst líka að þvi að Ísland og Frakkland verða saman í riðli á mótinu svo að þann 20. janúar þegar sá leikur fer fram þá kem ég annað hvort til með að vera ofuránægð og nudda samstarfsmönnum mínum óspart upp úr því að hafa tapað fyrir litla Íslandi eða þá ég verð illa brjáluð, kem líklega til með að neita að þjóna Frökkum og hætti að tala frönsku .... svo þetta er vægast sagt spennandi Tounge

Þetta var einmitt til umræðu í kvöldmatnum í gær og þeir hlógu bara að mér þegar ég sagði að það væri nú alveg mögulegt að við myndum vinna...við hefðum nú einu sinni unnið þá á HM í fyrra. Þá fékk ég bara
"bíddu bíddu vinan, Frakkar eru núverandi evrópumeistar plús það að Frakkland er stórt....Ísland er PÍNUlítið og ég meina hver veit einu sinni hvað það er....nefnu okkur eina fræga manneskju frá Íslandi" ??
Ég byrjaði á Björk....jaaa nei það kveikti ekki á neinum perum meira að segja þó ég lýsti svanakjólnum og allt... þá reyndi ég Sigurrós en þeim fannst það svo fyndið orð að rökin mín voru kæfð með hlátri. Þá datt mér bara enginn annar í  hug fyrr en jú allt í einu heyrðu jú einn sem þið þekkið pottþétt...Eiður Smári...!!!
Já það virkaði...þeir þekktu hann og hlógu ekki að mér...í staðinn þögðu þeir og svo kom ..
" þú ert að ljúga...hann er sænskur" !!!
Þar með var það útrætt Errm
Ég var samt ekki alveg á því að gefast upp og kom með þjóðremburökin að það byggju sko 60 milljónir manna í Frakklandi en á Íslandi byggju bara 300.000 og samt væri okkar handboltalandslið eitt af þeim bestu í heimi.... þá fékk ég bara "
jájá og í hvaða sæti á heimslistanum er fótboltalandsliðið ykkar".....
Þá var endanlega þaggað niður í mér !! Pinch

Já svo verð ég náttúrlega að nefna að Frakkland er orðið reyklaust land!!!
Jább þann 1.janúar 2008 tók gildi samskonar reykingarbann eins og er heima á Íslandi og fyrir mig þá er þetta alveg frábært. Ég þarf ekki lengur að þjóna fólki í reykingarsalnum því hann er ekki til lengur...bara vinsamlegast farðu út góði. Og svo mega hinir þjónarnir ekki heldur reykja inni í pásum svo að meðan þeir fara út í rigninguna (það er búin að vera rigning hérna í svona 2 vikur með smá pásum) þá stend ég inni í hlýjunni og hlæ að þeim LoL

Ég er svo orðin ein í herbergi núna þar sem Brasilía (Elisa herbergisfélaginn minn) er farin heim. 21 tíma ferðalag fyrir hana takk fyrir pent!
Reyndar finnst mér bara ágætt að vera ein í herbergi. Er búin að hafa herbergisfélaga síðustu 4 mánuði svo að þetta er bara fín tilbreyting.
Ég hef ekkert frétt ennþá um hvort að það kemur einhver í herbergið þ.e. einhver annar í svona program en ég er eiginlega bara að vona ekki. Reyndar tókst skeppnunum sem vinna með mér að hræða mig laglega þegar þeir sögðu að það væri að koma þýskur strákur!!!! Ég var ekki alveg að fíla tilhugsunina um að þurfa að deila herbergi með ókunnugum strák Gasp

Jæja ég held að ég hafi ekkert meira að segja í bili...
endilega skiljð eftir ykkur spor...

A bientot... Snædís Anna

 


Heimkomu frestað.....

halló halló. á maður ekki að reyna að koma inn eins og einni bloggfærslu fyrir jól.

Er engan vegin að átta mig á því að það séu að koma jól. Enda kannski ekki skrýtið því að ég hef alveg sleppt því að  taka þátt í jólabrjálæðinu sem yfirtekur fólk í desember og ef maður sleppir því alveg þá bara fer það fram hjá manni að jólin séu að koma.

Það er eiginlega ekkert að frétta hjá mér þannig séð.. er bara búin að vera að vinna og vinna, man ekki einu sinni hvað ég gerði á síðasta frídeginum mínum það var líklega svo ómerkilegt.
En á morgun kemur Steini hingað til mín og þá fer maður nú að nota tímann í að gera eitthvað af viti.

Úff ég er alveg innilega ekki að nenna að skrifa neitt hehe

ójá ég ætti kannski að útskýra afhverju fyrirsögnin er "heimkomu frestað" tíhí..
Já upphaflega planið var að ég kæmi heim þann 19. mars en nú ég sko aldeilis búið að breyta planinu.. ég kem til með að fara burt frá Frakklandi þann 16. mars og já bíddu það er ekki frestun á heimkomu heldur flýting.... en nei nei gott fólk ég er svo svakalega grand á þessu að ég fer í aðra utanlandsferð strax um morguninn 17. mars..!!!!!

Ójá... haldiði að mín ætli ekki bara að skella sér með familíunni til Dóminíska lýðveldisins í 10 daga áður en verður komið heim í snjóinn á Akureyrinni...
Fer með mömmu og pabba og strákunum, Óu og Jóni og tvíbbunum og ömmu gömlu :)
Og vonandi komast svo Halldóra og Þórhalla meðl íka og þá getum við farið á djammið á kvöldin ...
Vá hvað ég hlakka til þetta verður hrikalega gaman :D:D

dóminíska

óóójáá verður ekki slæmt að sóla sig þarna um páskana :D

 

Jæja ég nenni eiginlega ekki að skrifa meira ... skelli kannski inn jólabloggi einhvern tíman yfir hátíðarnar... annars segi ég bara

 Gleðileg jól allir, hafið það gott yfir hátíðarnar og njótið þess að vera í faðmi fjölskyldunnar...
Hlakka til að sjá ykkur öll á nýja árinu

kiss og knús..

Snædís Anna

 

 


Loksins kom fríhelgi....

Jæja loksins um liðna helgi var ég í fríi og ég ákvað að reyna að gera sem mest og skemmta mér núna um helgina.

Ég gerðist svo djörf á laugardaginn að skella mér í  bíó, alein og sorgleg og fór á nýju Disneymyndina Il était une fois....eða Enchanted á enskunni. Ég ákvað að vera ekkert að reyna að fara á einhverja þunga og dramatíska mynd þar sem að ég myndi pottþétt ekki skilja nóg og örugglega sofna líka. Maður getur allavega alltaf verið öruggur með það að Disneymyndirnar enda vel..alveg sama á hvaða tungumáli maður horfir á þær ;)
Mér gekk allavega bara ágætlega að skilja hana og gat hlegið að bröndurum og svoleiðis þannig að ég var nokkuð sátt með sjálfa mig bara. Er meira að segja að íhuga að fara í bíó um næstu helgi líka og fara þá á Bee movie....ætla bara að halda mig við teiknimyndirnar í bili heheh

Eftir bíóið fór ég upp á vist til að hitta alla krakkana og heyra hvað planið fyrir kvöldið væri, það var að sjálfsögðu að fara á djammið svo að ég ákvað að drífa mig heim á hótel og ná í djammgallann og ópalflöskuna góðu. Verð samt að segja frá hverju ég lenti á leiðinni að strætóskýlinu....

Ég var semsagt að rölta að strætóskýlinu til að taka strætó heim á hótel. Kvöldið var framundan og lofaði góðu svo að ég var í helvíti góðum fíling þar sem ég rölti eftir strandgötunni, raulandi íslensk jólalög með ipodinum mínum. Ég var nú ekkert að flýta mér þar sem að strætóarnir í Frakklandi eru alltaf 10 - 15 mínútum of seinir svo ég naut bara útsýnisins. Klukkan var rétt að verða 5 svo að sólin var að setjast, var svona alveg við sjóndeildarhringinn og sjórinn alveg lygn. Það sat betlari á stól og var að spila á harmonikku og gömul og krúttleg hjón leyddust eftir ströndinni.... mér fannst þetta eitthvað svo friðsælt og fallegt augnablik og hugsaði með mér að það yrði nú bara ekki svo slæmt að eyða jólunum hér........SPLASH.....ég steig í hundaskít!!!!!
Já gott fólk svona er Frakkland !!! Shocking

Kvöldið stóð svo vel undir væntingum. fórum hópur saman á Ástalskan bar þar sem ein af norsku stelpunum er farin að vinna! Ég veit svo ekki hvort að það er það að ég sé að verða svona gömul eða hvað en ég skemmti mér allavega konunglega bara við það að sitja og spjalla, drekka kokteila og hlægja með fólkinu. Svo var náttúrlega líka fyndið þegar fólk var að smakka ópalið góða...dómarnir eru að við séum rugluð að vera að drekka eitthvað sem bragðast eins og allt of sterkt hóstasaft !!
Hér er Zac að smakka Ópalið....

helgin 8. og 9. des 002
Ekki beint hrifinn af þessari uppgötvun íslendinga!!

Jæja eftir Ástralaska barinn var ferðinni heitið á hommabar í nágrenninu....stelpurnar voru nefnilega búnar að komast að því að þar væri langbesta tónlistin og þar þarf ekkert að hafa áhyggjur af einhverjum of ágengum strákum. Ekki skemmdi heldur fyrir hvað strákarnir sem voru með okkur voru dauðhræddir og ég hló mig máttlausa að Zac þegar hann var að reyna að safna hugrekki í að fara á klósettið !!! ahaha
Jæja allavega ég entist nú ekki lengi þarna þar sem tónlistin var ekki góð þetta kvöldið.

Þegar ég vaknaði 9 morguninn eftir var svo MÍGANDI rigning úti og ég var alveg brjáluð þar sem að ég sá fyrir mér að þurfa að eyða frídeginum mínum í að hanga inni og gera ekkert.
En það stytti fljótlega upp svo að dagsplanið okkar klikkaði ekki en það var að fara til Monaco. Svo um 1 leytið vorum ég, Johanna  (sænsk) og Zac mætt til Monaco, Björn komst ekki sökum mikillar þynnku ;)

Í Monaco eru þeir svo "pínu" svona grand'á öllu. Þar var búið að setja upp jólaþorp, fuuult af litlum húsum þar sem er verið að selja sætabrauð og jóladót...Eva Dís mín hefði misst sig þarna! Svo eru þeir með vélar til að gera gervisnjó og krakkarnir geta farið á litla snjósleða, skíði og brekkurnar eru alveg 30 cm eða eitthvað. Og mesta skemmtunin nattúrlega að læra að þekkja spor eftir mismunandi dýr í snjónum. Get ekki fyrir nokkra muni séð hvernig sú vitneskja kemur nokkurn tíman til með að koma frönskum börnum að gagni!!!

Allavega þegar við Johanna vorum búnar að jafna okkur á hláturskastinu sem við tókum þegar við sáum "snjóinn" þá nutum við þessa bara í botn, borðuðum sætabrauð, fórum í parísarhjólið og síðast en ekki síst þá fórum ég og Zac á skauta!! Já þeir eru sko búnir að breyta sundlauginni við höfnina í skautasvell...
Síðan voru jólaskreytingarnar í Monaco náttúrlega bara geðveikar, Tréið á torginu þar er aðeins flottara en ljótadiskótréið á torginu í Anitbes, ég tala nú ekki um þessi ógeðslegu sem að eru myndir af í síðasta bloggi....

 

helgin 8. og 9. des 012
ég með jólatrjánum og "snjónum í Monaco

 

helgin 8. og 9. des 017
Snjósleðar fyrir börnin...Zac langaði mikið að fara
enda aldrei farið á snjósleða greyið!!

 

helgin 8. og 9. des 021
Börnin á "skíðum" ahahha ooo ég er svo vond !!

 

helgin 8. og 9. des 030
Þeir gera hlutina flott í Monaco sko !!

 

helgin 8. og 9. des 035
Varð bara að taka mynd af því hvað bílnúmerin í
Monaco er kúl...geggjað stutt og auðveld heheh

 

 

helgin 8. og 9. des 036
Bíllinn sem ég var að kaupa mér hérna úti,
æ þið vitið var bara orðin pirruð á að taka alltaf
strætó svo ég splæsti bara í einn svona....
I wish heheh

helgin 8. og 9. des 043
Jólaskreytingarnar utan á Casinoinu ...bara flottar sko

  helgin 8. og 9. des 049
Og þetta er það sem maður kallar flott jólatré
Það þarf greinilega að senda Frakka á skreytinga-
námskeið til Monaco...

Jæja ætla að hætta þessu...það er kominn smá skammtur af Parísarmyndum...myndir frá Louvre og einhverjar frá Disneylandi...

Ég er allavega farin að lúlla...Bon nuit tout le monde Kissing

 

 

 

 


meiri snjó, meiri snjó!

Já halló halló, ákvað að taka mér pásu frá því að skrifa á jólakort og blogga smá. Lofa að það verður ekki svona hrikalega langt eins og alltaf !

Já ég er byrjuð að skrifa á jólakort, kannski frekar snemma í þessu, en hei, þetta verður eini jólaundirbúningurinn minn, ekki skreyti ég eða baka eða geri laufabrauð, svo ég ætla bara að dunda mér leeengi við jólakortin !

Annars ætla ég nú bara að þakka fyrir skemmtileg komment á síðasta blogg. Alltaf gaman að "heyra" svona smá í ykkur öllum heima. Og já Halldóra, rússíbaninn er enn í Disneylandi og komnir nýjir líka.....og ég fór i þá alla !! heheh

Svo á hún elsku mamma mín afmæli í dag, 21 árs kellan...nei bíddu það gengur ekki alveg þegar hún á tvítuga dóttur....Jæja þá rétt rúmlega 21 þá Wink
Til hamingju með daginn mamma mín!

Annars er svosem ekki mikið að frétta héðan, ég er bara að vinna og vinna. Fékk bara einn frídag í síðustu viku svo að þá var ég að vinna 57 tíma þá vikuna en í samningnum mínum stendur að ég eigi að vinna 39 tíma á viku!! Já karlinn skal sko fá að borga, ég er með þetta allt skráð niður og hann á eftir að vera hissa þegar ég heimta það sem hann skuldar mér! Held nú samt að hann komi til með að borga því ekki vill hann að ég fari að segja við Contact Europe, (ég er hér á vegum þeirra) að hann láti okkur útlendingana vinna of mikið og borgi svo ekki fyrir það. Það er nefnilega dáltið mikið ódýrara fyrir hótelið að vera alltaf með 2 svona útlendinga í vinnu og þurfa ekki að borga þeim nema 200 evrur á mánuði í staðinn fyrir að vera með þjóna á fullum launum.

Já svo er ég búin að fá Parísarmyndirnar sendar frá EvuDís (takk fyrir það sæta) og er að vinna í að setja þær inn...þær eru svo óhugnalega margar að ég verð að velja úr og svo tekur of langan tíma að hlaða þessu inn fyrir svona "þolinmóða" manneskju eins og mig svo að ég geri þetta i köflum.

Annars langar mig óhugnalega í snjó núna. Mér finnst eitthvað svo skrýtið að vera hér og það er 17 - 18 gráðu hiti, (Frakkarnir náttúrlega að frjósa í hel) og sól alla daga. Í mínum huga er bara júní eða eitthvað.
Svo finnst mér líka bara skrýtið að hugsa til þess að þetta fólk sem býr hér er bara vant því að veðurfarið sé svona um jólin. Ég veit ekki með ykkur en persónulega þá er ég bara ánægð með að eiga uppruna minn í landi þar sem snjóar um jólin + nokkra mánuði í viðbót Whistling
Það er miklu meiri stemning að hafa snjó heldur en sól og sand. ég meina það eru pottþétt takmörk fyrir því hvað er hægt að leika sér mikið að sandi en með snjóinn eru endalausir möguleikar.
Ég t.d. setti bara upp vorkunarsvip þegar Brasilíski herbergisfélagi minn sagði að hún hefði aldrei séð snjó á ævi sinni.
Ég bara "æi greyið hún" ! Aldrei farið í snjóstríð, gert snjókarl eða snjóhús eða snjóengla. Aldrei rennt sér á snjóþotu eða sleða, eða farið á snjósleða ! Sorglegt ekki satt.

Einu sinni gerðum við snjókarl sem að var örugglega 2 metrar á hæð, með pabba hjálp reyndar. Tókum mynd með honum, fórum svo inn og þegar við kíktum út um gluggann 5 mínútum seinna var hann hruninn...
Og svo hefur maður gert milljón snjóhús um ævina enda myndast yfirleitt alltaf upplagðir skaflar til snjóhúsagerðar bak við hús heima.
Jeminn og ruðningar í gamla daga, heilu fjöllin af snjó sem að var hægt að leika sér endalaust í.

Er það bara ég að sakna snjósins of mikið eða eru ekki lengur svona stórir og flottir ruðningar. Mér finnst undanfarnir vetur bara hafa einkennst af slabbi. Og eins mikið og mér finnst snjórinn skemmtilegur þá hata ég slabb. Má ég þá frekar velja frönsku 17 gráðurnar og auðar götur!!

úff, verðið að fyrirgefa, hellist bara yfirmann svo mikil nostalgía þegar maður er bara einn með hugsunum sínum í desember...svo mikið af skemmtilegum minningum tengdum desember.

Jæja ætla svosem ekki að hafa þetta mikið lengra, þið verið svo bara að bíða þolinmóð eftir að allt albúmið með parísarmyndum hlaðist inn !
Svo tók ég reyndar líka myndir af jólatréinu hérna á veitingastaðnum.....

 

24.nov - 2.des 024

 Fallegt eða hvað ... Shocking Ég hélt að þetta tré væi nú svona með þeim ljótari sem að maður sér...nei svo fór ég í mallið sem að er rétt hjá Nice á laugardaginn og ég fann þar jólatré sem lætur þetta tré líta virkilega vel út....

 

24.nov - 2.des 012

Það er eins og skrautið hafi fokið á tréið og sé bara fast þar, ég átti bara ekki orð þegar ég sá þetta heheh

set svo inn eina af mér að lokum, varð nefnilega fyrir smá árás á sunnudaginn...skil ekki hvað þetta er með mig og að vera alltaf að lenda í einhverju svona þar sem ég vinn... í húsasmiðjunni var mér ósjaldan hent í heita pottinn, kar fullt af köldu vatni eða sprautað á mig rjóma....ég bara botna ekkert í þessu, ég meina það er ekki eins og ég sé eitthvað stríðin eða hafi kannski átt þetta skilið....neheits....er alltaf stillt og góð :P
Allavega svona leit ég út eftir árásina....

 

 

24.nov - 2.des 021

Þetta er súkkulaði ef einhver er að spá í því.

 Jæja þarf að mæta í vinnuna, see you later people....

Snædís Anna

 

 

 

 

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband