Gleðilegt ár!

Góðan og blessaðan.

Þá er að koma með fyrsta bloggið á nýja árinu.
Að sjálfsögðu byrja ég þá á að segja Gleðilegt nýtt ár þið öll og takk kærlega fyrir ótalmargar skemmtilegar stundir á gamla árinu Kissing

Svo þakka ég líka kærlega fyrir allar þær fallegu gjafir og jólakort sem ég fékk frá ykkur heima. Mér hefur án efa aldrei fundist eins gaman að fá jólakort eins og þessi jól :)

Svona til að segja svo aðeins frá jólunum okkar Steina þetta árið þá voru þau vægast sagt frábrugðin því sem að maður er vanur! Steini kom á föstudeginum 21. des og um þá helgi fórum við svo í mallið í Nice og Steingrímur verslaði frá sér allt vit....reyndar var það nauðsynlegt þar sem að hann gat einungis komið með takmakað magn af fötum með sér því að taskan hans var full af jólagjöfum frá hinum og þessum hehe

Síðan var ég nú bara að vinna flesta dagana og Steini stundaði letilífið grimmt á meðan...
Á aðfangadag var ég reyndar í frí og þá fórum við og versluðum okkur í jólamatinn.
Við borðuðum svo uppá herbergi og ég held að ég verði bara að setja inn mynd af "matarborðinu" okkar við tækifæri. Á matseðlinum var kampavín, jarðaber og súkkulaði, ostar og kex og vínber...og já mandarínur !!! Við átum okkur ágætlega södd af þessu, spjölluðum svo aðeins við mömmu og pabba á skype og horfðum svo á mynd!!!
Þetta var semsagt mjög frábrugðið venjulegu aðfangadagskvöldi en samt sem áður bara mjög kósý og skemmtilegt.
Restin af tímanum var svo svipuð...ég að vinna og þegar ég var ekki að vinna fórum við í bæinn, eitt skipti til Mónako og svo nokkrum sinnum út að borða.
Annars voru það bara afslöppun og rólegheit sem voru við völd.
Steini fór svo heim í gær og ég get ekki sagt að það hafi verið beint skemmtileg ferð á flugvöllinn...en ég hugga mig við það að það eru bara 10 vikur í að ég fari þangað aftur og það verður sko skemmtileg ferð hehe

Annars er ekki mikið nýtt að frétta. Ég er bara farin að setja mig í stellingar fyrir EM í handbolta og hitaði upp í gær með þvi að horfa á Ísland - Danmörk...svekkjandi tap þar enda er alltaf verst að tapa fyrir helvítis Dönunum Crying
Ég komst líka að þvi að Ísland og Frakkland verða saman í riðli á mótinu svo að þann 20. janúar þegar sá leikur fer fram þá kem ég annað hvort til með að vera ofuránægð og nudda samstarfsmönnum mínum óspart upp úr því að hafa tapað fyrir litla Íslandi eða þá ég verð illa brjáluð, kem líklega til með að neita að þjóna Frökkum og hætti að tala frönsku .... svo þetta er vægast sagt spennandi Tounge

Þetta var einmitt til umræðu í kvöldmatnum í gær og þeir hlógu bara að mér þegar ég sagði að það væri nú alveg mögulegt að við myndum vinna...við hefðum nú einu sinni unnið þá á HM í fyrra. Þá fékk ég bara
"bíddu bíddu vinan, Frakkar eru núverandi evrópumeistar plús það að Frakkland er stórt....Ísland er PÍNUlítið og ég meina hver veit einu sinni hvað það er....nefnu okkur eina fræga manneskju frá Íslandi" ??
Ég byrjaði á Björk....jaaa nei það kveikti ekki á neinum perum meira að segja þó ég lýsti svanakjólnum og allt... þá reyndi ég Sigurrós en þeim fannst það svo fyndið orð að rökin mín voru kæfð með hlátri. Þá datt mér bara enginn annar í  hug fyrr en jú allt í einu heyrðu jú einn sem þið þekkið pottþétt...Eiður Smári...!!!
Já það virkaði...þeir þekktu hann og hlógu ekki að mér...í staðinn þögðu þeir og svo kom ..
" þú ert að ljúga...hann er sænskur" !!!
Þar með var það útrætt Errm
Ég var samt ekki alveg á því að gefast upp og kom með þjóðremburökin að það byggju sko 60 milljónir manna í Frakklandi en á Íslandi byggju bara 300.000 og samt væri okkar handboltalandslið eitt af þeim bestu í heimi.... þá fékk ég bara "
jájá og í hvaða sæti á heimslistanum er fótboltalandsliðið ykkar".....
Þá var endanlega þaggað niður í mér !! Pinch

Já svo verð ég náttúrlega að nefna að Frakkland er orðið reyklaust land!!!
Jább þann 1.janúar 2008 tók gildi samskonar reykingarbann eins og er heima á Íslandi og fyrir mig þá er þetta alveg frábært. Ég þarf ekki lengur að þjóna fólki í reykingarsalnum því hann er ekki til lengur...bara vinsamlegast farðu út góði. Og svo mega hinir þjónarnir ekki heldur reykja inni í pásum svo að meðan þeir fara út í rigninguna (það er búin að vera rigning hérna í svona 2 vikur með smá pásum) þá stend ég inni í hlýjunni og hlæ að þeim LoL

Ég er svo orðin ein í herbergi núna þar sem Brasilía (Elisa herbergisfélaginn minn) er farin heim. 21 tíma ferðalag fyrir hana takk fyrir pent!
Reyndar finnst mér bara ágætt að vera ein í herbergi. Er búin að hafa herbergisfélaga síðustu 4 mánuði svo að þetta er bara fín tilbreyting.
Ég hef ekkert frétt ennþá um hvort að það kemur einhver í herbergið þ.e. einhver annar í svona program en ég er eiginlega bara að vona ekki. Reyndar tókst skeppnunum sem vinna með mér að hræða mig laglega þegar þeir sögðu að það væri að koma þýskur strákur!!!! Ég var ekki alveg að fíla tilhugsunina um að þurfa að deila herbergi með ókunnugum strák Gasp

Jæja ég held að ég hafi ekkert meira að segja í bili...
endilega skiljð eftir ykkur spor...

A bientot... Snædís Anna

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gleðilegt ár sæta mín!!!

Æji sé að þetta hafa bara verið kósý jól hjá ykkur skötuhjúunum 

Heyrðu já þessi leikur var frekar svekkjandi....og síðustu mínútúrnar...eða bara sekúndurnar ÖMURLEGAR

en hafðu það gott sæta mín - manstu ég er búin að ákveða að janúar og febrúar verða fljótir að líða hehe

Hulda (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 18:43

2 identicon

Hæ já Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár. Sorry, þú fékkst því miður ekkert svo fallegt frá mér... En ég bæti það upp með góðu partýi ;) Jáhh og svo eru komnar fréttir! ( ef þú hugsaðir að ég væri komin með kærasta... gleymdu því.) ég er flutt í skarðshlíðina aftur! Hehe, gaman? Já, ekki svo gaman að laga hana alla til! Fer svo vonandi að hitta þig á msn og sýna þér myndir :D

En gott að þið skötuhjúin höfðu það gott. Kæææær kveðja til þín í rigningunni

Sólveig (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 20:14

3 identicon

HAHAHA!!! gott að þeir ákváðu bara að gera hann Eið sænskan... þá eigum við ekkert! þá er bara að vona en meira að ísland vinni svo þú getir þaggað niður í þessu fólki í eit skipti fyrir öll

en við vitum víst hverjar eru likurnar á því

Hildur (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 21:35

4 identicon

Gleðilegt árið og haltu áfram að láta þá heyra það þarna !!!

 Ekkert rugl, þetta er ekki búið fyrr en einhver syngur eitthvað og hver veit nema það verði íslenski þjóðsöngurinn sem verður margraddaður ;)

Halldóra Magg (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 23:06

5 identicon

sæl Snædís mín  Gott að frétta frá þér og heyra að allt gengur vel Þetta hafa greinilega verið mjög mikið öðruvísi jól hjá ykkur en.gott að prófa það Takk fyrir kortið og myndirnar um jólin þú tekur þig ansi vel út á þeim. Allt gott að fretta hér  ég var að tala við Ævar áðan honum gekk mjög vel í prófunum og er vel ánægður með það þau koma svo heim í apríl og fara aftur í agúst þá á hann eina önn eftir svo vona ég bara  að allt gangi vel hjá þér áfram og þér líði sem best .Prófaðu að nefna Nonnabækurnar við þessa frakkasauði þarna.  Bless bless amma.

amma Áslaug (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 21:36

6 identicon

Sæl litla dóttir. Bara að sýna að ég lesi einhverntímann síðuna þína. Heyrumst á morgun eftir vinnu hjá þér. Kveðja Mamma.

Þury (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 21:56

7 identicon

hæhæ, vá hvað ég væri orðin pirruð útí þessa frakka maður... össss ég væri vitlaus ef það yrði látið svona við mig hehe... En það sýnir nú bara hvað þessir frakkar eru miklir vitleysingar

En vildi bara kvitta fyrir mig, en vá bara 10 vikur vá hvað tíminn líður

Íris Björk (IP-tala skráð) 9.1.2008 kl. 13:31

8 identicon

Hæ Snædís;) og gleðilegt ár, við erum bara næstum því nágrannar núna, þarf bara að hoppa yfir nokkra tinda og þá er það komið;)

Hrefna (IP-tala skráð) 10.1.2008 kl. 17:07

9 identicon

Hæhæ kjútípæ;) Ég ákvað að taka mér örstutt hlé frá þessari fáránlegu vísindaheimspeki og kíkka eftir nýjum bloggum. Áttaði mig á því að hér var ég bara ekki búin að kommenta, þannig að hér hefurðu það, þetta líka ossafína komment;)

Gott að jólin þín voru góð, og enn betra að maður þurfti ekki að vita af þér aleinni þarna úti yfir jólin.

Sakniknús, Eva Dís;) :*

Eva Dís (IP-tala skráð) 12.1.2008 kl. 15:02

10 identicon

heyrðu hvernig er þetta....ertu á lífið kona???

Hef ekki séð þig á msn í MARGA DAGA...fer nú bara að verða hrædd sko!!!....eða öllu heldur - sakna þín alveg klikkað:*

Hulda (IP-tala skráð) 15.1.2008 kl. 21:12

11 identicon

Hæ elskan mín, takk æðislega fyrir kortið! ú færð bara þitt þegar þú kemur heim í mars, mundi ekki aaaaalveg adressuna þína þarna úti ;)

En annars vona ég alltaf að þú hafir það jafn gott & hlakka til að sjá þig, styttist óðum!

Knús frá Ííískalda landinu sem er 7 stiga frost á!

Karen (IP-tala skráð) 16.1.2008 kl. 09:37

12 identicon

bara láta vita að það er komið pjattpíkublogg;0)

Hulda (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 18:02

13 identicon

erum við að grínast með leikinn í gær eða???

Hulda (IP-tala skráð) 18.1.2008 kl. 18:43

14 identicon

Bara ad lata vita af mer... eg fylgist med ther!

-GtA (IP-tala skráð) 18.1.2008 kl. 18:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband