19.1.2008 | 15:58
Bonjour....
Hmm gleymdi ég að minnast á það í síðasta bloggi að það var bæði
fyrsta og síðasta bloggið á nýja árinu
hehe nei nei ætli maður verði nú ekki að láta vita af sér stöku sinnum.
Allavega já já ég er alveg á lífi og hef það ágætt. Er ekkert lögst í þunglyndi eða neitt svoleiðis eftir Svíaleikinn á fimmtudaginn. Ég var reyndar hættulega nálægt því að springa úr reiði FYRIR leikinn. !!!!
Reiði mín hafði reyndar ekkert með Svía að gera en allt með ruv.is og þá staðreynd að ég skuli vera í Frakklandi að gera.
Já það er nefnilega þannig að eins og ég sagði ykkur frá í siðasta bloggi þá var ég sko alveg búin að setja mig í stellingar að hofa á landsleikina á ruv.is. Horfði á (svekkjandi) Danaleikinn þar og líka Tékkaleikina. Svo var ég svo heppin að ég var í fríi á fimmtudaginn svo að ég var mætt fyrir framan tölvuna með nammi í kringum mig og tilbúin að þenja lungun klukkan 8 á fimmtudagskvöldið (að frönskum tíma)
Dembi mér svo inná mitt ástkæra ruv.is og NEI!!!!! Þar blasti við mér þessi texti
Landsleikir frá EM í handbolta eru aðeins aðgengilegir innanlands vegna réttindamála á útsendingum.
AAAARRRGGG!!!! 
Já þar með var draumurinn úti....jesús hvað ég var reið.
Aumingja Eva Dís slysaðist inná msn og fékk alveg reiðigusuna yfir sig...sorry krúsin mín...hún hélt held ég að það væri eitthvað alvarlegt að og var bara fegin þegar hún áttaði sig á því að það var bara handbolti.
Reyndar bætti það skap mitt ekki þar sem að þetta var að sjálfsögðu gravalvarlegt vandamál
að mínu mati. 
Svo verð ég að vinna þegar leikurinn er í kvöld svo að ég get ekki einu sinni fylgst með "beinu SKRIFUÐU lýsingunni" á mbl.is
Jæja á ég að hætta að tala um handbolta eða....
Það er ekki neitt að frétta heheh
Er búin að ákveða hvernig ég breyti flugunum mínum og á þá bara eftir að bóka. Það verður reyndar ekki gert fyrr en samtökunum þóknast að borga mér styrkinn minn
Allavega lendi á klakanum 15. mars um 4 leytið seinnipartinn og þar ætlar hún Halldóra frænka að bíða eftir mér. Hún lendir sjálf í Keflavík 2 klukkutímum fyrr en ég og svo ætlum við að redda okkur gistingu saman. Ég ákvað að það væri miklu betra að fljúga á laugardeginum og geta sofið almennilega og svona áður en maður heldur út í sólina með familíunni.
Á mánudeginu 17. mars er það svo bara sólin og blíða...djíísús hvað ég hlakka til. Ætla sko bara að liggja á ströndinni og gera sem minnst...kannski kíkja í mallið sem er víst við hliðina
Jamm eins og ég segi er ekki mikið í fréttum, það er búin að vera rigning hér síðan ég veit ekki hvenær....hélt að ég myndi drukkna á mánudaginn síðasta, en nú er aftur kominn sól og blíða og stefnir í að það haldist eitthvað þannig.
En já á mánudaginn átti ég frí og uhum...já uuu fór "pínu" á útsölur 
Það voru hins vegar engir strætóar þar sem að núna er strætóbílstjórarnir alltaf í verkfalli á mánudögum...Frakkar eru án efa verkfallsglöðustu menn í heiminum. Ég hins vegar neitaði að láta verkfallið eyðileggja fyrir mér að fara á útsölur svo ég bara labbaði niður í bæ í rigningunni og tók svo lest í mallið. Um kvöldið þegar ég kom til baka þá var svo mikil rigning að ég bjóst bara við því þá og þegar að regnhlífin mín myndi gefa sig. En þetta hafðist allt á endanum og ég komst heim með alla pokana 
Já svo verð ég nú að segja frá þessu svona í framhaldi af siðasta bloggi þegar ég var að reyna að finna einhvern frægan íslending sem þessir lúðar hérna á hótelinu þekktu. Allavega þá kemur einn þeirra til mín í gær þegar hann mætti í vinnuna og segir þvílíkt glottandi...
"ég er búinn að finna íslending sem ég þekki"
Ég varð náttúrlega bara ofsaglöð og alveg nú hvern??
"Fíísjer" sagð'ann þá enn meira glottandi
Hmm ég var nú ekki alveg að átta mig á þessu íslenska nafni fyrr og horfði bara á manninn spurnaraugum....
"Hann er frægur skákmeistari"
Piff já Bobby Fisher, það er nú ekki hægt að kalla hann Íslending sagði ég frekar móðguð.
Það hafði þá komið í frönsku fréttirnar að Bobby greyið Fisher væri dáinn og það hefur greinilega eitthvað verið minnst á að Ísland líka...
já við Íslendingar erum greinilega alveg að fara að taka yfir heiminn..það er alveg ljóst
Jæja ætla að fara að slá botninn í þetta. Það kemur svo í ljós annað kvöld hvort að það var gáfulegt hjá mér að auglýsa að Frakkland og Ísland væru að keppa á morgun. Vona að ég verðir ekki niðurlægð og þurfi að kaupa Mcdonald's ofan í þjónana eins og veðmálið segir
Nei auðvitað verður það ekki þannig Ísland rústar þessu.... maður verður nú að vera bjartsýnn eins og íslendingum sæmir ha.....koma sér í æfingu fyrir Eurovisionbjartsýnina 





Athugasemdir
hæhæ og takk fyrir kvittið:) hrikalegt að heyra með ruv.is...... ekki sniðugt!!!
haha og hann fíísjer íslendingur hehe.. ekki alveg;P en vonandi hefuru það rosalega gott:)
kveðja af das klak;)
Jónbjörg:) (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 17:48
Þar sem að ég er náttúrulega einstaklega illa innrætt... þá hló ég þegar þú gast ekki horft á leikinn. Sá þig svo fyrir mér hahaha. Satt eða ósatt... kláraðirðu samt ekki nammið sem var komið fyrir leikinn ;)
Hvenær á ég svo að fara að plana þetta heimkomupartý???? Maður fær bara að heyra hvenær þú ferð í sólina... hmmm eða þarf ég að lesa betur.... uhhhh nii nenni því nú ekki. En er búin að skilja eftir mig fingrafar á síðunni.
Jááá Sæææll!
Sólveig (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 22:52
Þetta er náttúrulega grafalvarlegt mál!!! Svona lagað á bara ekki að eiga sér stað.
Hræðilegur leikur á fimmtudaginn - góður í gær - ÖMURLEGUR í dag....úfff!!!
Hulda (IP-tala skráð) 20.1.2008 kl. 18:45
Hehe já ég verð nú eiginlega að viðurkenna að ég varð svona pínkuponsu fegin að það var bara leikurinn, hljómaði eins og eitthvað hræðilegt hefði komið fyrir. En ok skal líka viðurkenna það að þetta hefur örugglega verið mjög sárt að vera komin í stellingar og geta svo ekki einu sinni horft á leikinn! En, ég heyrði (nei ég meina ég sá, audda horfði ég á hann hmmmm..) að þetta hefði verið slæmur leikur...lukkudýrið var því miður bara ekkert samvinnuþýtt við mig hehe;)
En heyrðu, knúsípús, hafðu það gott:*
Eva Dís (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 19:28
Hæhæ. Bara að kvitta fyrir komuna. Vona að þú hafir það gott úti;)
Imba Heiðdal (IP-tala skráð) 22.1.2008 kl. 20:58
Hey min kaera, eg er ekkert inni tessum handbolta.. allir adrir alveg sjukir.. meira ad segja mamma gamla organdi og alveg tryllt heima i stofu.. sususss.. :)
Er annars buna finna gistingu fyrir okkur.. getum verid hja Stellu a Bragagotunni.. fint ta getum vid bara tekid bussinn og hann faerir okkur naer alla leid heim til hennar! Eg bid eftir ter a vellinum, tilbuin med lakkrispokann og hardfiskinn haha..... Hlakka til :)
XXX Farud varlega snaedis min... Tin Halldora Eydis
Halldora (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 15:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.