23.1.2008 | 15:44
Smá innskot....
Í dag labbaði ég í Carrefour til að kaupa mér hádegismat því að ég fékk hrísgrjón í matinn á hótelinu. Ég labbaði út á peysunni og á leiðinni fann ég lyktina af nýslegnu grasi og það var fuglasöngur allt í kringum mig. Svo settist ég niður í sólinni og borðaði ljúffenga samloku.
Það er komið vor hjá mér ........
Er ekki annars bara stuð þarna heima í frostinu og snjónum 





Athugasemdir
Halló Snædís mín Leikurinn á HM er svo spennandi að eg hef ekki taugar til að horfa á hann, jafnt í hálfl. Núna eru Íslendingar yfir 25.20 ca þori samt ekki að trúa að þeir vinni Allt gott að frétta smá snjór og mjög hált.'Eg er í fríi núna í nokkra daga Vona að þú hafir það gott og það væri gaman að heyra frá þer Núna er staðan 29.22. ótrúlegt, munur eða á móti bölv.... Frökkunum þeir eru líka eins og naut. Jæja kannski ég þori að horfa á restina
Aslaug amma (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 20:37
æji góða sko bite me....neineinei ég meina....bite you!!!
hér er drullukalt, fljúgandi hált, snjór...já og bara ALLS EKKI komið vor!!!
Annars bara sakna ég þín rosalega...hey janúar er aaaalveg að verða búinn svo þetta er að takast hjá okkur hehe
Hulda (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 10:32
OMG...það er ekki nóg með það að við séum að skíta á okkur á EM...heldur er Alli Gísla HÆTTUR!!!
Hulda (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 17:23
SKAMM... það er allt sem ég hef að segja!
Hildur (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 10:52
Iss það er sko miklu notalegra hérna heima í snjónum! Langar ekkert í þetta asnalega vor!:p
Karen (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 10:59
Það er enn ískalt hjá mér enda er ég þúsund meturm yfir sjávarmáli hehe, mig langar virkilega í sól og fuglasöng. Það er samt alveg smá vorlykt í loftinu hérna ef þú miðar við Ísland! knús hrefna
Hrefna (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 15:15
Ohhhh geturu ekki sent mer adeins hita og sol hingad yfir....
Eg get barasta ekki bedid eftir ad komast i solbad!!!
Ps. eg er ad paela ad flugja med icelandair,,... tad er vist odyrara... en eg bid eftir ter a vellinum :)
XXX Tin Halldora
Halldora (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 15:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.