10.2.2008 | 20:27
Febrúar ....
Jæja já... úff ég veit að ég er löt að blogga en það er lika ástæðan fyrir þvi að ég hef aldrei nennt að vera með blogg áður.... þið getið bara gengið út frá því held ég að ef að kemur ekki nýtt blogg þá er ég ekki að gera neitt merkilegt.
Síðustu vikur hafa verið frekar rólegar og tilbreytingarlausar.
Frídagarnir hafa farið í rölt í Cannes eða Nice, bíóferðir og jú svo fór ég upp í fjöllin hérna í kring á fimmtudaginn síðasta. Ég var búin að sjá svo marga bæklinga um þennan fjallabæ, að þetta væri einhver algjör fjallaparadís svo ég ákvað að drífa mig. Leitaði lengi en fann að lokum viljastyrkinn til að vakna klukkan 7 um morguninn, tók 1 strætó og 2 lestar og 4 tímum eftir að ég vaknaði var ég komin á leiðarenda. Það er skemmst frá því að segja að þessi bær var minni en Grenivík og það var ekkert að gera þarna...eftir hálftíma var ég búin að taka nóg af myndum af fjöllunum og svona því jú, útsýnið og náttúran var mjög flott. En já ekki lengi gert að skoða þennan bæ...Endaði með að taka lestina til baka til Nice og fór þar í bíó á Ástrík og Steinrík...skemmti mér konunglega og hló mikið, mæli sko eindregið með þessari mynd.
Svo gerðust þau undur og stórmerki á föstudaginn að ég safnaði upp hugrekki og dreif mig í klippingu. Hef verið frekar hikandi við það sökum þess að ég var hrædd um að ég gæti ekki gert mig skiljanlega og þá yrði hárið litað fjólublátt og svo er ég líka bara búin að sjá svo mikið af konum hér í Antibes með HRÆÐILEGAR hárgreiðslur...en svo ákvað ég á föstudaginn að þetta gengi ekki lengur..og það kom í ljós að þessi hræðsla mín var algjörlega ónauðsynleg.
Strípurnar tókust bara vel og klippingin..ja ég hef ekki verið með svona stutt hár í mörg ár en er samt bara ánægð með þetta....fegin að losna við lubbann...
LUBBI !!!
Búið klippa lubbann..."smá" breyting !!
Annars er ekki mikið annað í fréttum...í dag eru akkúrat 5 vikur í að ég hitti familíuna í Reykjavík og fari með þeim í sólina á Dóminíska lýðveldinu í 10 daga...svo er það bara Ísland og ljúfa lífið...
Held að ég sé farin að hlakka of mikið til....en það er nú bara þannig að lífið hér er orðið svo mikill vani og ég held að ég sé að verða komin með ógeð á að vera ein með sjálfri mér ehehe
Svo það verður æði að koma heim og byrja í nýrri vinnu og geta böggað vinkonurnar ef að mig vantar eitthvað að gera ;) Búin að vara þær við að ég verði örugglega mjög uppáþrengjandi þegar ég kem heim. ;)
Veðurfréttir: í dag er heiðskírt og 18° hiti!! Samt finnst mér ekkert rosalega heitt og ef maður er í skugga þá er bara kalt!!
Liður ykkur ekki betur með skaflana ykkar þarna heima þegar ég segi að mér sé kalt í 18 gráðum 
Jæja hef ekkert meira að segja...er búin að láta vita að ég er á lífi en eins og ég segi þá geri ég ráð fyrir að næstu 5 vikurnar verði frekar rólegar og komi aðallega til með að snúast um að hlakka til að koma HEIM !!!
Oki þetta er orðið gott...stutt blogg svona til tilbreytingar :P
Adios
~ Snædís Anna ~
Ps. ég og þolinmæðin mín gáfumst upp á myndaalbúminu á þessari síðu svo ég bjó til nýtt og það er kominn tengill inn á þá síðu hér til hliðar... endilega kíkkið, afgangurinn af parísarmyndunum er að hlaðast inn og hver veit nema ég smelli inn nokkrum myndum frá jólunum ;)





Athugasemdir
Flott á þér hárið gellan þín. Það er eins gott að það styttist í að þú komir heim svo að við getum farið að gera allt það sem okkur langar að gera með þér (þá er ég bara að tala fyrir okkur fjölskylduna að Steina undanskildum :)
Hlökkum til að fá þig heim
Kv. Familían í Skjólgarði
Halldóra Magg (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 21:11
rosa flott hárið;0)
Pant að hafa þessar 5 vikur fljótar að líða!!!
Hulda (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 19:22
okeibb... töff klipping, En skaflarnig eru nú eiginlega horfnir... það er búið að vera alveg heilar 5-7 gráðu hiti og vindur, þannig að snjórinn er farinn/að fara og komin killer hálka í staðinn sumstaðar. En annars komst ég ekki í það að taka myndir af sköflum til að sýna þessum ösnum þarna í frakklandi
En annars bara að kvitta fyrir mig.
Íris Björk (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 19:46
Oh elsku Snædís.... Viltu senda mér smá hita hingað yfir áður en ég krókna! Bretland er ekki að elska mig þessa vikuna né ég Bretland! Í dag varð svo kalt að eg er í jakkanum inni.. get ekki beðið eftir að komast í frí.. frí frí frí!!! Á reyndar alltof mikið eftir að gera fyrir skiladag sem er eftir 10 daga.. ætlað láta mig dreyma um sólbað, sand og sjó meðan ég púla þetta af! :)
Hlakka til að sjá þig:) Ekki hættað blogga alltaf gaman að lesa!
Flott klippingin þín! Ég var líka hrædd við að fara á franska stofu, en fór þegar ég var á Interrailinu og lét í mig ljósar strípur.. það skildi enginn hvað ég sagði, þannig ég bara benti og hristi hausinn. Þau dekruðu við mig og ég leifði þeim það bara, svo vildu þau endilega setja eitthvað á andlitið á mér... já já ég leifði það! Þegar ég kom heim ca 3 tímum seinna var ég dökkbrún appelsínugul, með ógeðslegustu gerfibrúnku sem ég hef séð og hryllingsskil á hálsinum! Já.. þannig ekki fara í brúnkumeðferð þarna!!!!! :) Mæli ekki með því:p
Sjáumst ótrúega fljótt og þá verð ég komin í laaaangþráð fríííí!!! Þín Halldóra Eydís
Halldóra Eydis (IP-tala skráð) 16.2.2008 kl. 23:33
Já Snædís.. get ekki skilið með nokkru móti afhverju þeir eru ekki látnir spila berir að ofan!!!! Ég færi amk örugglega á leikvöllinn þá, ef það væir bannað að spila fótbolta í bol!!!!
:) Jæja.. haha ég er alveg í ruglinu að reynað koma saman ritgerð um útlit, tísku og lýtaaðgerðir... og félagslegar aðstöður tengdu því.. alveg úff! :) Þetta kemur... mánuður í ferðina.. við Þórhalla erum víst ennþá á biðlista! Ég syndi ef ég kemst ekki í flugið... annars hef ég ekkert á móti að vera bara eftir á dóminíska.... !!! :p XXX
Halldóra Eydis (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 22:42
flott klipping ;) hafðu það gott síðustu vikurnar
Hildur (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 16:45
Hæ sæta, mín bara gordjöss með nýja dú-ið!
Við tökum gott djamm þegar þú kemur heim ;)
Karen (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 14:12
Sammála Karen við verðum að taka eitt gott djamm þegar þú kemur heim :)
Helga (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 17:16
hæ Snædís, flottar myndir af Marseille! og æðislegt jólatréð í Monaco:) hlakka líka til að sjá þig
Hrefna:)
Hrefna (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 19:07
Hmmm ég er lélegur kommentari...ég er samt einlægur aðdáandi þrátt fyrir það....en hér er allavega komment:)
Skil vel hræðslu þína að fara í klippingu í útlöndum, mín kom ekki vel út hehe, en þú hefur bara sloppið nokkuð vel, töff hár! ;)
Má ég fá 18 gráðurnar þínar í smá stund? Og má ég koma næst með til Ítalíu? Ok töff, takk;)
Rétt rúmur mánuður í að þú komir heim!!! Get ekki beðið! Sakniknús;*
Eva Dís (IP-tala skráð) 21.2.2008 kl. 10:07
hei elsku snaia min. VID KOMUM MED:) jei, eg get ekki bedid. og svo er tad bara djamm a hverju kvoldi medpartyljoninu freysteini:) haha
allt gott ad fretta af mer. rosalega mikil vinna her og iiiisskkaalllttt alltaf. fekk fyrsta fridaginn minn i dag. buin ad vera her i rumlega 3 vikur. ja, alltof mikil vinna og alltof litlir peningar. tetta er samt frabairt. eg bya hoteli uppi olpunum og tegar eg fer nidri bai, tha tek eg bara thoturassinn minn og renni mer. eda tek skidalyftuna. tad er agaitt.
en eg hlakka til ad sja tig.
rejs bahamas:)
thin thorhalla.x.x.x.x
thorhalla (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 18:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.