Gleðilegan konudag.....

...kæru dömur ;)

Í dag er víst síðasti sunnudagurinn í febrúar sem þýðir að næsta sunnudag er kominn mars en það þýðir að það eru einungins tvær vikur í brottför mína frá Frakklandi.
Það skall nefnilega á mér núna í vikunni hvað er fáranlega stutt eftir, ég held að ég sé ekki alveg að átta mig á því. Er búin að hlakka svo lengi til að ég næ ekki alveg upp í það að þetta sé bara að fara að gerast. Bara svona svipað og rétt áður en ég fór út....
Ég hef allavega vega ákveðið að taka þann pól í hæðina að reyna að draga aðeins úr tilhlökkuninni, svona svo hún gangi nú ekki frá mér, og njóta þessara síðustu vikna hérna.

Ég geri mér vel grein fyrir að ég hef kvartað yfir ýmsum hlutum og ekki alltaf verið ánægð með lífið hérna. En það er bara óhjákvæmilegur fylgifiskur þess að fara út í svona ævintýri aleinn... það hlaut alltaf að vera að það yrði eitthvað sem yrði erfitt og ég væri nú bara eitthvað skrýtin ef ég hefði aldrei fengið heimþrá.
En þegar öllu er á botninn hvolft þá hefur þetta verið goður tími og ótrúleg lífsreynsla. Ég er mjög ánægð með að ég gafst ekki upp þegar vinnan var sem erfiðust í byrjun, heldur fékk pep-up frá fólkinu mínu heima og hélt áfram. Ég veit að ég á sko aldrei eftir að sjá eftir að hafa farið hingað og upplifað þetta allt og ég á örugglega eftir að minnast þessa tíma míns hér með bros á vör í framtíðinni. Smile
Já svona er þetta, er voða mikið búin að vera í svona pælingum undanfarna daga.

Humm látum okkur sjá, annað sem ég hef verið að gera... síðan í síðasta bloggi er ég búin að fara einn dag yfir til Ítalíu í lítinn bæ sem heitir San Remo (sjá myndir á www.picasaweb.google.com/snaedisanna ). Það var gaman að geta bara farið upp í lest og einum og hálfum tíma seinna var ég komin í annað land, lúxus sem við íslendingar erum nú ekki vanir. Samt fannst mér allt í einu kjánalegt að geta ekki talað við fólkið þar sem ég skildi ekki neitt og enskan mín lét sig hverfa þegar ég var að reyna að panta mér mat. En eftir mikið handapat og bendingar fékk ég að borða. Fyndið samt hvað ítalirnir eru öðruvísi en frakkarnir, ég sat á bekk þarna og naut útsýnisins og gamall maður settist bara allt í einu við hliðina á mér og spjallaði heillengi við mig....á ítölsku að sjálfsögðu. Ég skildi nú ekki mikið en þó tókst okkur aðeins að spjalla um daginn og veginn. Fannst þetta bara fyndið þar sem þetta hefur aldrei gerst hér í Frakklandi á 5 mánuðum og svo fer ég einn dag til Ítalíu og þá vilja allir spjalla ;)
Svo var þetta pottþétt einhver perrakall  !!! æi nei fallegri tilhugsun að hann hafi bara verið svona indæll Halo

 Daginn eftir Ítalíu tók ég aftur lest og fór þann daginn til Marseille, en það er önnur stærsta borgin í Frakklandi og víst líka sú önnur hættulegasta í Evrópu Bandit
En víkingurinn ég lét það nú ekki hræða mig, tók lestina galvösk og var mætt á svæðið 2 tímum seinna. Það var þá sem ég áttaði mig á því, þar sem ég stóð á stærstu lestarstöð sem ég hef á ævinni séð, í borg þar sem búa 1,5 milljónir manna, að ég hafði ekki hugmynd um hvert ég átti að fara eða hvað ég ætlaði að gera. Eftir að vera búin að prófa að labba út um 4 mismunandi útganga lestarstöðvarinnar ákvað ég að taka bara neðanjarðarlestina á einhvern töff stað. Ég fann nafn á kortinu sem ég kannaðist við úr túristabókinni minni og þangað var haldið. Þakkaði guði fyrir að Irene kenndi mér hvernig metro-ið í París virkar þegar ég var þar því þetta kerfi var eins....sorry nú verð ég að útskýra afhverju ég skrifaði nafnið hennar ef hún les þetta

*Irene, je te dis merci de me montrer comment le metro a paris marche parce que le metro a Marseille a était pareil :* Je t'aime Kissing

Anyway, ég fann tourist-information eftir stutta metro ferð og allt reddaðist. Nema ég reyndar villtist feitt í miðbænum og var orðin illa pirruð þegar ég var farin að ganga dimmar götur og ljótir, spúkí karlar, kallandi á eftir mér. Ótrúlegt en satt var það svo svona lítil túristalest sem að bætti skapið eftir að ég var hætt að vera villt. Eitthvað sem ég var sko búin að sverja að ég ætlaði aldrei að gera því þetta væri svo hrikalega lame, þið vitið svona lítil opin lest, full af túristum í sandölum og sokkum og fer svo hægt að hún tefur umferð. En þetta reyndist svo vera auðveld og ódýr lausn til að skoða borgina. Getið séð myndir frá Marseille á myndasíðunni ;)

Á fimmtudaginn síðasta fór ég svo kveðjuferð í CAP3000, en það er risamallið hérna.  Útsölurnar eru nefnilega búnar og núna eru ný föt i öllum búðunum. Það er þá sem ég lendi í vandræðum nefnilega, ekki þegar eru útsölur. Var komin þangað um 2 leytið og fékk mér að borða og já...klukkan 5 ákvað ég að ég yrði bara að fara þarna út til að stoppa mig af. Á leiðinni út bað ég öryggisvörð að setja mig á bannlista, svo að mér yrði ekki framar hleypt þarna inn...úff svakaleg ferð sko....fyrir veskið þ.e. ég skemmti mér konunglega Joyful

Um kvöldið fór ég svo á fyrsta djammið mitt á nýju ári. Hún Amie frá Noregi, sem var með mér í skólanum, er nefnilega komin aftur hingað til Antibes og ég fór því á vistina og fór á djammið með krökkunum þar. Var svo bara grand á því og tók taxa heim á hótel eftir á....25 evrur takk fyrir fyrir 10 mínútna bílferð !!! Ég gat spjallað helling við leigubílstjórann á leiðinni heim og verð nú bara að nefna sko að þó ég segi sjálf frá þá er ég bara að verða nokkuð ánægð með frönskuna mína!

En já á fös, var fundur með Contact Europe og var það síðasta skiptið fyrir mig, þar sem ég verð farin þegar næsti fundur er!!! Fórum á skauta í Nice, brjálað fjör og svo kaffihús á eftir. Borðaði svo með þremur þjóðverjum um kvöldið og óvart sagði við þau að mér fyndist þýska ljótt tungumál Blush
Góð Snædís !!!

Vinnan gengur fínt bara, er orðin brjálað góður þjónn ;) heheh allavega betri en þessir letikúkar sem eru að reyna að læra að vera þjónar, ég sver metnaðurinn fer með þá einn daginn - NOT!!
Það er sko eiginlega hægt að segja að það sé hin besta skemmtun að horfa á þennan 16 ára sópa gólfið, hann heldur jú báðum höndum um sópinn en svo sveiflar hann honum bara svona fram og til baka og í hringi. þannig fýkur ruslið undir stólana og hann sér það ekki lengur og voilá....job done !!! Svo er hann alveg hissa þegar manneskjan sem skúrar gólfið á eftir kvartar yfir að það sé illa sópað hjá honum (oftast ég Wink)
Einnig er hin besta skemmtun að plata þessar elskur til að tala ensku. Einn þeirra var svaka kúl við kvöldmatarborðið í kvöld þegar hann bað mig að rétta sér grænmetið á ensku! það var borðið fram einhvern vegin svona ~ vegjétabeles ~ ég ætlaði að sjálfsögðu aldrei að hætta að hlægja, það láku tár og allt og að launum fékk ég vegjétabeles upp í eyrun Shocking

Annað gott enskudæmi: Um daginn spurði einn þeirra hvort að mér fyndist ekki Alicia Keis góð söngkona...Ekki Keys...nei Keis...!!!!
Það versta við hann reyndar er að hann tekur engum sönsum þegar ég góðlátlega reyni að leiðrétta. Sami drengur hefur nefnilega áður haldið fram að Víetnam sé við hliðina á Brasilíu og að Kína sé í norður-Ameríku. Ég í góðmennsku minni reyni að leiðrétta hann en Nei, ég er bara vitlaus og þegar ég gafst upp á að vera góðlátleg og sýndi honum heimskort til að rökstyðja mig þá er það bara vitlaust og það hefur gleymst að merkja víetnam inn á það !!!!
Já þeir eru frábærir þessir Frakkar. Whistling

Jæja ætla að fara að hætta að gera grín að þessum ljúflingum og fara að smella mér inn í draumaheiminn. Byrjaði nefnilega að vinna um hádegi alla síðustu viku og var orðin bara vön því svo að vakna klukkan 8 alla daga þessa viku er alveg að fara með mig ! Svo mér veitir ekki af að fara að sofa.

Hafið það gott elskurnar og við sjáumst einhver eftir 3 vikur, hinir á djamminu 29. mars W00t Ekki langt í það  hehe ó já og ein spurnig til ykkar svona í lokin....

Eru mörgæsir á norðurpólnum ???

 Bonne nuit mes chéries

Snædís
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

jahá...þetta er bara heljar blogg

Þetta virðast nú óttalegir vitleysingar þessir gaurar sem þú ert að vinna með hehe en vildi bara kvitta fyrir mig.

Og þetta  með norðurpólinn ég held að það séu ekki mörgæsir á norðurpólnum, held að þær finnist bara á suðurpólnum, en er ekki viss samt

Íris Björk (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 14:26

2 identicon

Hehehe gott blogg;) Jamm útlendingar og framburður og fyndið, fjölskyldan mín stóð fast á því að nöfn söngkvennanna Whitney Houston og Britney Spears væru borin fram Wætní og Brætní, hehe og þau ennþá trúa þau mér ekki að það sé vitlaust hehehe...;)

En jamm 29. mars er dagurinn, hlakka ekkert smá til!!! Njóttu þess stutta tímar sem er eftir af dvölinni, get lofað þér því að eftir því sem tíminn líður þegar þú ert komin heim síast slæmu hlutirnir frá og eftir verða bara góðar minningar:)  

Klakaknús, Eva Dís;*

Eva Dís (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 18:06

3 identicon

20 dagar í að þú komir heim

Hallgrímur (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 21:45

4 identicon

hlakka MESTAST til að fá þig heim!!!

*knús*

Hulda (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 15:12

5 identicon


Útbreiðsla ísbjarna og mörgæsa. Hahahahahah stal þessu af einhverjum vef. Bláa er hvar mörgæsir eiga heima Þegar þú settir þessa spurningu inn þá bara varð ég að vita svarið og ég googlaði áður en ég yrði geðveik

Íris Björk (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 19:46

6 identicon

Þá geturðu semsagt sýnt frönsku snillingunum hvar mörgæsirnar búa

En ha á maður virkilega að hlakka til að þú komir heim, af hverju?? skil ekkert í þessu

 Lov U

Steini (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 22:48

7 identicon

já ég lærði það einhvern tímann a unga aldri að ísbirnir borða ekki mörgæsir því þau búa ekki a sama stað :P Þetta blogg var snilldarútleið frá kennslufræðiverkefninu mínu um gangtegundir íslenska hestsins, takk kærlega :D Það er rosalega erfitt að missa sig ekki í öfund stundum yfir því að sumt fólk skuli vera að ferðast um heiminn hehe. Þýska ljótt tungumál trúi því nú ekki upp á þig að hafa látið það út úr þér hahaha.

Já ég held maður eigi að hlakka til :D það er aldeilis farið að styttast í þig, það verður geggjað að sjá þig - á djamminu í mars eða hvenær sem það nú verður. Knús og kossar.

Þóra (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 10:59

8 identicon

Hæhæ nafna! :)

Varð bara að kíkka á þig og kvitta þar sem mig dreymdi þig í nótt!

Man ekki draminn en þú varst allavega þarna! ;) Hlýtur að vera útaf því að þú ert að fara að koma á klakann bráðlega!   ...nema það búi eitthvað í hugskotum mínum sem ég veit ekki ennþá um...  hahaha, plataði þig! 

En vá þú átt eftir að frjósa úr kulda þegar þú kemur aftur, það er allavega alltaf einhver skítahrollur í mér þessa dagana!

 Hehe, allavega hafðu það nú gott þennan tíma sem þú átt eftir þarna og njóttu þess því þú átt pott þétt eftir að sjá eftir að hafa ekki notið þess þegar þú kemur heim...

 Sjáumst svo hressar á norður Íslandi!

Anna Sæunn (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 15:14

9 identicon

Oh váts... geggjað langt blogg hjá þér sæta mín!

Vá.. loksins loksins er tíminn farinn að líða!

Svo stutt... hlakka líka til!

En veistu það er samt svo rétt hjá þér... maður á bara að skella sér útí þetta einn og bara láta vaða, og öll mistök, klúður og að villast er bara gaman eftir á... þa getur maður sko hlegið sig máttlausan!

Jei.. alveg að koma að þessu!

Luv ya... Hey... og váts hvað þú ert góð í frönsku!!! :)

Þín H

Halldóra Jónsdóttir (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband