3.3.2008 | 14:34
Kem heim í mánuðinum.....
Vá það er ljúft að geta sagt þetta...kem heim í þessum mánuði. Fer meira að segja burt héðan frá Frakklandi í næstu viku !!!
Ég er þó búin að fá tilboð um að vera hér lengur, 1 -2 helst 3 mánuði en ég þurfti samt ekki að hugsa mig lengi um... Heim verður haldið þann 15. mars! .
Núna eru þeir bara ægilega mógðaðir við mig og segjast allir með tölu hlakka mikið til að ég fari og þeir losni við þessa freku og afskiptasömu íslensku konu
Ég held að þeir fari allir að grenja þegar ég fer heim, hahahah!
Er búin að ákveða að skilja eftir smá gjöf handa starfsfólkinu þegar ég fer. Lét Evu Dís mína kaupa fyrir mig litla ljósmyndabók um Ísland með texta á frönsku. Með bókinni ætla ég svo að láta fylgja lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna síðan 2007 en þar er Ísland í 1. sæti...en Frakkland í því 10.... vá þeir eiga eftir aðvera svo glaðir múhahaha 
Annars er svosem ekki mikið að frétta, er bara að njóta þess tíma sem eftir er hérna. Sólin er klárlega að taka völdin aftur og eftir að sitja í klukkutíma úti við sundlaugina í gær náði ég mér bara í ágætis roða....ekki brúnku takið eftir..... Roða!!!
Í vikunni er svo stefnan að reyna að senda heim kassa með bókum, dvd myndum og svona þungu dóti sem er langt frá að verði pláss fyrir í ferðatöskunni.
Á dagskránni er líka að fara í sprautu en mér til einstakrar ánægju tilkynntu foreldrar mínir mér það að ég þyrfti að fara sprautu fyrir lifrabólgu A áður en við förum til Dóminíska.
Og kerfið hér er svoooo gáfulegt að maður þarf sko að byrja á því að fara til læknis og hann skrifar upp á lyfseðil fyrir þessu lyfi, og rukkar að sjálfsögðu fyrir. Eftir það þarf að fara í apótekið og sækja lyfið, og borga. Því næst er að fara aftur til læknisins, með lyfið, og biðja hann að sprauta því í þig....og svo, ja þið giskuðuð á það, borga!!!!
En þetta ætla ég samt að leggja á mig og kortið mitt af því að ég er með eindæmum hlýðin stúlka og geri þetta því mamma sagði mér að gera það !!
já svo eru að hlaðast inn myndir frá því á föstudaginn en þá var ég geggjað hipp og og kúl og fór á de festival de citron í bæ hérna stutt frá. Það er semsagt hátíð það sem allur bærinn er skreyttur með appelsínum og sítrónum og búin til listaverk;) Um kvöldið var svo svaka skrúðganga þar sem vagnarnir voru auðvitað skreyttir með sítrónum og alls konar flott og skemmtilegt.
Allavega, um 50 myndir af sítrónulistaverkum ef einhver hefur áhuga
(www.picasaweb.google.com/snaedisanna)
Hef held ég bara ekkert meira að segja ykkur, þau fara nú að verða fá eftir skiptin sem að ég kem til með að skrifa inn á þessa síðu þar sem ég á pottþétt ekki eftir að nenna að blogga eftir að heim kemur!
En það kemur allavega pottþétt eitt í viðbót áður en ég kveð Frakkland svo bíðið spennt heheh 
bisous
Snædís Anna
ps. gleymdi að útskýra hvað var málið með mörgæsa og ísbjarna spurninguna í siðasta bloggi en það var semsagt vegna þess að snillingurinn sem heldur því fram að Brasilía og Víetnam séu hlið við hlið var svo viss um að það væru mörgæsir á norðurpólnum líka, nú er ég hins vegar komin með svo marga sem eru sammála mér að ég kaffæri hann í rökum næst þegar ég hitti hann ;)





Athugasemdir
Sæl gamla
Það er nokkuð ljóst að ávextirnir eru ekki alveg í sama verðflokki þarna úti og hérna heima! Þetta hefði hún amma mín nú kallað að fara illa með góðan mat ;)
Góða ferð heim ;)
Halldóra Magg (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 17:35
Sæl dúllan mín ! Það er gott að sjá að þú ert jafn hlýðin og góð stúlka og þú varst áður en þú fórst til Frakklands. Muna Snædís mín, alltaf að hlýða mömmu sinni.
Þury (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 22:17
bwahahahaha....hlíðin stúlka já!!!
En guð hvað ég hlakka til að fá þig heim:D:D:D Við steini erum búin að semja að ég megi EIGA þig fyrstu ja allavega vikuna eftir að þú kemur heim (jú víst Steini - þú bara manst ekki eftir því)!!!
Er allavega búin að fá frí þarna á laugardagskvöldinu svo ég bíð spennt;0) já og svo loooofa ég að fara að vinna í mailinu...bra búið að vera svo brjálað að gera hjá mér en ég hef sko nóg að segja þér;0)
Hulda (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 20:58
Hmm já Hulda mín, alltaf gott að vera bjartsýn. Þú mátt eiga ástina mína á laugardeginum milli 18:30 og 23:30 og kannski nokkrum mínútum lengur. Öðru lofa ég ekki
Annars eru núna 24 sólarhringar og 1 klst, og já ég er sko farinn að telja
Steini (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 22:26
Hlakka til að sjá þig skvíz
Hildur (IP-tala skráð) 7.3.2008 kl. 22:15
Oh það verður svooooo gott að fá þig heim kjútípæ...saaakna þín...ég hugsa að ég verði samt að ræna þér til að fá tíma með þér...allir verða nú að upplifa eitt mannrán á ævinni er það ekki hehe...ok það er díll, ætla að byrja að plana dæmið....ohh mannrán eru svo spennandi hehe....en jamm oki, verður rosalega gott að fá þig, hlakka mikið til, stórt knús, jú nó æ lov jú;)
Eva Dís sem saknar þín ógó mikið;)
Eva Dís (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 13:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.