15.3.2008 | 08:01
Komið að lokum!
Já það er komið að þessu...engin meiri bið eða niðurtalning.
Ég er búin að vera 6 mánuði og 1 viku hér í Frakklandi og það er komið að því að fara heim.
Þetta er búinn að vera ótrúlegur tími. Ég er búin að kynnast nýju og skemmtilegu fólki, nýjum siðum og venjum og jafnvel nýjum hliðum á mér sjálfri.
Þetta er og verður, án nokkurs efa, eitthvað sem ég kem til með að búa að alla ævi!
Þetta hefur verið erfitt á tímum og stundum langaði mig ekkert meira en að pakka öllum skónum mínum ofan í tösku og fara heim!
Aðra daga, lék lífið við mig og ég velti fyrir mér hvað í ósköpunum maður væri að hugsa að búa í myrkra - og kuldabæli eins og Íslandi.
Núna í kvöld, horfi ég í kringum mig í herberginu mínu, herbergi 308 sem hefur verið heimili mitt síðustu mánuði. Ég er búin að taka myndirnar mínar niður af veggjunum og hirða upp heimilislegu fatahrúgurnar. Allt dótið, föt, SKÓR og annað er komið ofan í ferðatösku sem er um það bil að springa og ég hef áhyggjur af að mér verði ekki hleypt með þetta flykki inn í neina flugvél.
Í kvöld kvaddi ég vinnufélaga mína, fólk sem ég hef hitt á nánast hverjum degi í hálft ár en eftir daginn í dag, hitti ég kannski aldrei aftur!
Ég afhenti gjöfina sem ég nefndi í síðasta bloggi og hún sló að sjálfsögðu í gegn, þó að það þyrfti mikinn sannfæringarkraft til að fá þau til að trúa að það væri í alvöru heitt vatn í bláa lóninu.
Núna ætti ég að fara að sofa, þar sem ég þarf að vakna klukkan 4 í fyrramálið og hefja ferðina heim. Ég veit samt að ég á ekki eftir að geta sofnað, það eru nefnilega mætt kunnugleg fiðrildi í magann.... fiðrildi sem ég fann síðast fyrir 9. september 2007 þegar ég hélt alein í 6 mánaða ævintýri til Frakklands.
Well....úti er ævintýri ;)
ójá, sem fyrrverandi MA-ingur þá get ég nú ekki sett inn blogg án þess að minnast á Gettu betur keppnina í kvöld, ég er ótrúlega stolt af MA, þau stóðu sig eins og hetjur og tókst að gera þetta alveg ótrúlega spennandi! En, já svona er lífið og annað liðið verður að vinna, í kvöld var það MR og til hamingju með það MR-ingar.
-
Smá framhald.....þetta blogg átti að koma inn í gærkvöldi en nettengingin mín ákvað að renna út akkúrtat í þann mund sem ég kláraði bloggið.Núna sit ég á kaffihúsi á flugvellinum í París og eftir ca 4 tíma verð ég
komin upp í flugvél á leiðinni til Íslands.
Mér var semsagt hleypt um borð þrátt fyrir ógnvænlega stærð töskunnar minnar en jú.... ég er með yfirvigt
Get svo svarið það að taskan er svo þung að það er ekki einu sinni hægt að draga hana á eftir sér, hélt að handleggurinn myndi slitna af mér !! Allavega, þá er ég komin í bloggpásu núna, kannski bara í stuttan tíma, kannski að eilífu, sé til. Hver veit, ef ég sólbrenn alvarlega og þarf að halda mig innandyra úti á Dóminíska ( sem eru btw allar líkur á) þá kannski gef ég mér tíma til að skella inn eins og einu bloggi !
Annars þakka ég bara skemmtileg komment á síðuna síðustu 6 mánuði og sætt af ykkur að nenna að fylgjast með mér ;)
bisous (kossar)
Snædís Anna - sem er á leiðinni heim !





Athugasemdir
úff er svo STOLTUST af þér sæta mín;0)
Get samt ekki lýst því hvað ég hlakka mikið til að fá þig alveg heim eftir akkúrat 2 vikur:D:D:D
Góða ferð heim og góða skemmtun úti í dóminíska;0)
*kossar&knús*
Hulda - semsaknarþínmestastoghlakkarógómikiðtilaðfáþigheim!!!
Hulda (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 09:17
Takk fyrir skemmtileg blogg, eins og ég hef áður sagt er ómetanlegt að fá svona menningarfréttir utan úr heimi þegar maður situr hér í hjaltadalnum :) góða skemmtun í næstu ferð og svo verður gaman að sjá þig hérna heima á "kalda" og "dimma" íslandi (á svo innilega ekki við í dag, sól og æðislegt veður svona í tilefni prófalesturs)!!
Kossar til þín líka
Þóra
Þóra (IP-tala skráð) 15.3.2008 kl. 17:29
Er með fiðrildi í maganum með þér
Man eftir hvað það var skrítið að horfa á tómt herbergið og vera á leiðinni heim...
En heima er BEST!
Hildur (IP-tala skráð) 17.3.2008 kl. 18:41
Jæja kjútípæ, styttist í þetta, bara vika eftir!!! Verður það geggjað eða hvað sko? ;)
Annars bara, hafðu það sem allra best þarna út í Dóminíska, gleðilega páska, knús:*
P.s. Gott blogg:)
Eva Dís (IP-tala skráð) 22.3.2008 kl. 17:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.